miđ. 21. ágú. 2024 23:15
Jonathan Glenn er ekki lengur ţjálfari Keflavíkur.
Trínidadinn rekinn frá Keflavík

Jonathan Glenn verđur ekki áfram ţjálfari kvennaliđs Keflavíkur í knattspyrnu.

Keflavíkurmiđilinn Víkurfréttir greinir frá en samkvćmt honum ákvađ stjórn knattspyrnudeildar á fundi sínum í dag ađ endurnýja ekki samning Jonathans hjá félaginu, en hann rennur út í lok tímabils. 

Enn fremur óskar stjórnin ekki eftir frekara vinnuframlagi frá ţjálfaranum ţađ sem eftir lifir keppnistímabilsins. 

Jonathan tók viđ liđinu fyrir síđasta tímabil en hann var áđur ţjálfari kvennaliđs ÍBV. Hann er 36 ára gamall, fyrrverandi landsliđsmađur Trínidad og Tóbagó, og lék međ ÍBV, Breiđabliki og Fylki áđur en hann lagđi skóna á hilluna og einbeitti sér ađ ţjálfun.

Keflavík er í neđsta sćti Bestu deildarinnar međ níu stig, jafnmörg og Fylkir og ţremur stigum á eftir Tindastóli. 

til baka