Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Real Sociedad muni gera tilboð í Orra Stein Óskarsson, framherja FC Kaupmannahafnar. Íslendingurinn sé efstur á óskalista spænska liðsins.
Orri hefur verið orðaður við fjöldann allan af liðum í Evrópu í sumar, þar á meðal Atalanta, Stuttgart og Brighton, en svo virðist sem Baskaland sé líklegasti áfangastaðurinn fari svo að Orri yfirgefi Kaupmannahöfn.
FCK hefur sett tuttugu milljón evra verðmiða á framherjann unga sem hefur skorað sex mörk í fyrstu níu leikjum tímabilsins.