Íslenska stúlknalandsliðið í handbolta sigraði Indland auðveldlega, 33:15, á heimsmeistaramóti U18 ára landsliða í Chuzhou í Kína í morgun.
Ísland leiddi 17:4 í hálfleik og mesti munurinn var 21 mark, 31:10.
Ísland leikur um 25. sætið á mótinu eftir sigurinn en Indverjar spila um 27. sætið. Leikirnir fara fram á morgun.