fös. 30. ágú. 2024 10:30
Á skiltunum mátti sjá texta-myndverk úr smiðju Margrétar Bjarnardóttur.
Íslensk listkröfuganga á torgi kóngsins

Um tugur ungra Dana gekk í morgun rólega í hringi á Kóngsins nýjatorgi í hjarta Kaupmannahafnar og allir með skilti á lofti.

Við fyrstu sýn hefði mátt halda að um hófstillta kröfugöngu væri að ræða en þegar betur var að gáð mátti sjá að á skiltunum voru texta-myndverk, verk úr smiðju Margrétar Bjarnadóttur danshöfundar, skálds og myndlistarkonu.

 

Þessi gjörningur Margrétar verður endurtekinn á torginu á morgun en hann er á dagskrá hinnar vinsælu norrænu listkaupstefnu CHART í Kaupmannahöfn sem þessa dagana er haldin í tólfta skipti í kunnum sölum Charlottenborgar og Konunglega listakademísins við torgið og Nýhöfnina.

36 helstu gallerí Norðurlanda taka þátt í CHART að þessu sinni og meðal annars þrjú íslensk, i8, BERG Contemporary og Þula og sýna þau og bjóða til sölu ný sem eldri myndlistarverk eftir fjölda íslenskra listamanna.

til baka