Endurkoma Oasis á næsta ári hefur ekki aðeins vakið mikla eftirvæntingu fyrir hinni víðfrægu bresku hljómsveit, heldur hefur eftirspurn fyrir Oasis-heiðurshljómsveitinni Definitely Mightbe einnig aukist.
Oasis var vinsæl á tíunda áratugnum en hætti árið 2009. Hljómsveitin tilkynnti á þriðjudag að á næsta ári myndi hún koma saman aftur fyrir tónleikaferðalag um heiminn.
Milljónir reyndu í morgun að kaupa miða á fyrstu 17 tónleikana sem hafa verið auglýstir, og gripu margir í tómt.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/08/31/oasis_addaendur_i_klandri/
Síminn ekki stöðvað
Heiðurshljómsveitin Definitely Mightbe, sem spilar bara Oasis lög, hefur þegar fundið fyrir auknum áhuga á eigin hljómsveit.
„Ég hef lifað á henni [hljómsveitinni] í 20 ár en síðan þetta var tilkynnt [...] hefur síminn ekki stöðvað,“ sagði Ian Alcock, sem leikur Liam Gallagher í heiðurshljómsveitinni, í samtali við AFP fréttastofuna.