mið. 18. sept. 2024 19:19
Qazim Laci fagnar marki sínu.
Tékkarnir byrjuðu með látum

Tékklandsmeistararnir í Sparta Prag byrjuðu með látum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta en liðið vann sannfærandi heimasigur á Salzburg frá Austurríki, 3:0, í fyrstu umferð deildarkeppninnar í kvöld.

Finninn Kaan Kairinen kom Spörtu yfir strax á annarri mínútu og Victor Olatunji bætti við öðru markinu 40 mínútum síðar og var staðan í leikhléi 2:0. Þannig var hún fram að 58. mínútu er Albaninn Qazim Laci skoraði þriðja markið og þar við sat.

Bologna frá Ítalíu og Shakhtar Donetsk frá Úkraínu skildu jöfn, 0:0, á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Georgiy Sudakov fékk besta færi leiksins strax á 4. mínútu en Lukasz Skorupski í marki Bologna varði frá honum víti.

til baka