Wolfsburg er svo gott sem komið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir risasigur á Fiorentina, 7:0, í fyrri leik liðanna í umspili í Flórens í kvöld.
Alexandra Jóhannsdóttir lék allan leikinn með Fiorentina. Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Wolfsburg á 63. mínútu í stöðunni 6:0.
Sædís Rún Heiðarsdóttir kom inn á sem varamaður hjá norska liðinu Vålerenga á 80. mínútu er það vann Anderlecht frá Belgíu á útivelli, 2:1.
Enska liðið Arsenal mátti þola tap gegn Häcken frá Svíþjóð á útivelli, 1:0. Manchester City vann hins vegar stórsigur á Paris FC, 5:0, á útivelli.
Seinni leikir liðanna fara fram í næstu viku.