fim. 19. sept. 2024 07:55
Andlát: Kristinn Már Stefánsson

Kristinn Már Stefánsson, fyrrverandi landsliđsmađur og landsliđsţjálfari í körfuknattleik, lést sl. föstudag á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni eftir veikindi, 79 ára ađ aldri.

Kristinn fćddist í Reykjavík 3. júní 1945, ólst upp í Vesturbćnum en ćttađur frá Seyđisfirđi og úr Borgarfirđi. Foreldrar Kristins voru ţau Steinunn Kristín Ţórarinsdóttir og Stefán Hannesson.

Gekk Kristinn í Melaskóla, Hagaskóla og Verslunarskólann. Starfsferill hans hófst hjá Stálsmiđjunni en hann starfađi nánast alla starfsćvina sem bókari.

Ţekktastur er Kristinn fyrir afskipti sín af körfuknattleiknum. Hannes S. Jónsson formađur KKÍ orđađi ţađ ţannig viđ Morgunblađiđ í gćr ađ karfan hefđi veriđ líf og yndi Kristins. Hann hefđi enn veriđ mjög áhugasamur um íţróttina á efri árum og viljađ leggja gott til mála.

Kristinn lék međ KR og var gallharđur KR-ingur alla tíđ. Hann var í sigursćlu liđi sem varđ fimm sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. Kristinn lék sem miđherji og á yfir 300 leiki fyrir KR frá 1962-77 en auk ţess 34 A-landsleiki. Var hann valinn leikmađur ársins áriđ 1974.

Afskiptum Kristins af íţróttinni lauk ekki ţegar keppnisferlinum sleppti. Hann ţjálfađi hjá KR og var landsliđsţjálfari karla ásamt Birgi Erni Birgis áriđ 1976. Hann átti árum saman sćti í stjórn körfuknattleiksdeildar KR og körfuboltasambandsins. Var hann um tíma gjaldkeri KKÍ.

Kristinn var ásamt Einari Bollasyni hvatamađur ađ stofnun aganefndar innan KKÍ ţegar hann var enn leikmađur og sömdu ţeir fyrstu reglur nefndarinnar. Til gamans má geta ađ í bókinni Leikni framar líkamsburđum kemur jafnframt fram ađ fyrstu mennirnir sem dćmdir voru í leikbann af aganefndinni voru einmitt ţeir Kristinn og Einar.

Kristinn eignađist ţrjú börn međ Magnúsínu G. Valdimarsdóttur. Ţau skildu áriđ 1989. Börn ţeirra eru Stefán Már, Björgvin Már og Kristín Ásta en barnabörnin eru níu og eitt barnabarnabarn.

til baka