fim. 19. sept. 2024 20:55
Marco Carnesecchi í marki Atalanta spyrnir fram í kvöld. Gabriel Jesus sćkir ađ honum.
Vítaklúđur í markalausu jafntefli

Atalanta tók á móti Arsenal í fyrstu umferđ Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Spilađ var í Bergamó á Ítalíu og endađi leikurinn međ bragđdaufu markalausu jafntefli, 0:0.

Óhćtt er ađ segja ađ fyrri hálfleikur hafi veriđ ómerkilegur. Hvorugu liđinu tókst ađ tengja saman sendingar á vallarhelmingi andstćđingsins og úr varđ vćgast sagt óspennandi leikur.

Seinni hálfleikur hófst af miklum krafti ţegar Atalanta fékk vítaspyrnu á 48. mínútu. Brasilíumađurinn Ederson fór ţá illa međ Thomas Partey sem braut af sér og Clement Turpin, dómari leiksins, benti á punktinn.

Mateo Retegui fór á punktinn en hann lét David Raya, markvörđ Arsenal, verja frá sér. Frákastiđ endađi hjá Retegui sem átti skalla ađ marki en Raya var fljótur á fćtur og varđi aftur frá ítalska framherjanum.

 

Gabriel Martinelli fékk dauđafćri á 75. mínútu ţegar hann fékk góđa sendingu frá Raheem Sterling inn fyrir vörn heimamanna. Brasilíumađurinn fór hins vegar illa ađ ráđi sínu og skaut boltanum hátt yfir markiđ.

Meira gerđist ekki í ţessum leik og endađi leikurinn međ markalausu jafntefli.

til baka