fim. 19. sept. 2024 17:00
Afturelding er meistari meistaranna í blaki í karlaflokki.
Afturelding meistari meistaranna

Afturelding er meistari meistaranna í karlaflokki í blaki eftir sigur á Hamri, 3:2, í miklum spennuleik í meistarakeppni BLÍ í Hveragerði í gærkvöldi.

Gestirnir úr Mosfellsbæ byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinuna 25:17. Hamar svaraði með sigri í næstu tveimur hrinum, 25:11 og 25:13. Afturelding svaraði, 25:23, og réðust úrslitin því í oddahrinu.

Hún var jöfn framan af en eftir að Afturelding náði 8:6 forystu tóku gestirnir völdin og unnu hrinuna 15:9 og leikinn í leiðinni.

Jakub Grzegolec skoraði 15 stig fyrri Aftureldingu. Tomek Leik gerði 24 fyrir Hamar.  

til baka