Á dögunum fagnaði íslenska húðvörumerkið, Chito Care Beauty, merkilegum áfanga í íslenskri nýsköpun þegar fyrirtækið opnaði sína fyrstu húð- og fegurðar lækningastofu í Lundúnum. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt fyrirtæki opnar sína eigin stofu í Bretlandi.
Sigríður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Chito Care Beauty kynnti vöruna fyrir erlendum blaðamönnum sem komu frá Vogue og Tatler svo einhverjir séu nefndir. Þar voru líka áhrifavaldar og viðskiptafólk. Sendiherra Íslands í Lundúnum, Sturla Sigurjónsson, mætti í boðið sem fram fór á húð- og fegurðarstofunni við Harley Street. Boðið var upp á kampavín og veitingar sem minntu á íslenska náttúru.
Fegurðar lækningastofan er staðsett við hina virtu Harley Street en í götunni eru aðallega læknastofur af ýmsu tagi, allt frá tannlæknum upp í lýtalækna.
Var áður hjá Selfridges
Chito Care Beauty opnaði stofuna í samstarfi við The Aska Group sem rekin er af íslenska lögfræðingnum, Aldísi Kristínu Firman Árnadóttur sem hefur verið búsett í Lundúnum í 20 ár en með henni í fyrirtækinu er Giorgiana Cardos, sem er þekkt í fegrunarbransa Lundúnaborgar. Hún var áður innkaupastjóri hjá Selfridges og framkvæmdastjóri hjá MAC svo einhver stórfyrirtæki á snyrtivöruheiminum séu nefnd.
Chito Care Beauty tilheyrir Primex Iceland, sem nýtir lækningamátt kítósans, sem er unnið með sjálfbærum hætti úr rækjuskel sem veidd er í Norður-Atlantshafi. Nýja stofan býður upp á húðmeðferðir sem sameina þetta öfluga efni með hátæknibúnaði til að tryggja að rakinn fari djúpt ofan í húðina og veiti meiri frískleika.