þri. 19. nóv. 2024 07:57
Marius Borg Høiby hefur verið látinn laus.
Sonur Mette-Marit handtekinn grunaður um nauðgun

Marius Borg Høiby, 27 ára sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, hefur verið handtekinn, grunaður um nauðgun.

Norska lögreglan greindi frá þessu.

afa

Í tilkynningu sagði hún að Høiby, sem Mette-Marit eignaðist áður en hún giftist Hákoni krónprinsi, hefði verið handtekinn í gærkvöldi vegna gruns um að brjóta lög „sem snúa að kynferðismökum með einhverjum sem er meðvitundarlaus eða af öðrum ástæðum getur ekki komið í veg fyrir athæfið“.

afa

til baka