þri. 19. nóv. 2024 10:05
Eigendur sameinað félags Kælingar og Víkurafls, frá vinstri: Atli Steinn Jónsson, E. Stefán Kristjónsson, Jón Pétur Sigurðsson, Arnþór Sigurðsson og Þorleifur Hjalti Alfreðsson.
Kæling og Víkurafl sameinast

Kæling ehf. og Víkurafl ehf. hafa ákveðið að sameinast og munu þekkjast undir nanfinu Kæling Víkurafl, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Kæling og Víkurafl hafa þegar unnið sameiginlega að fjölda verkefna í gegnum tíðina, meðal annars um borð í fiskiskipum og í landvinnslum.

„Samvinna í þessum verkefnum hefur gengið afar vel sem var kveikjan að hugmynd eigenda að sameina félögin. Mikil sérþekking liggur hjá báðum félögum þá einna helst tengt sjávarútvegi en mikill vöxtur og ný þekking hefur myndast hratt hjá báðum félögum við uppsetningar og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki,“ segir í tilkynnignunni.

Fullyrt er að við samrunan verði til „mjög öflugt þekkingar og þjónustufyrirtæki á sviði hitastýringa og sjálfvirknivæðinga. Fyrirtækið selur áfram staðlaðar og sérhannaðar kæli- og hitastýringalausnir auk sjálstýringa ýmiskonar fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi, fiskeldi, líftækniiðnaði, matvælaframleiðslu og öðrum iðnaði.“

Þá mun fyrirtækið veita alhliða þjónustu og vöktun kælibúnaðar, kælilausna og rafbúnaði fyrirtækja.

Samlegðaráhrif

„Samlegðaráhrif sameiningarinnar eru mikil milli félaganna og ávinningur viðskiptavina verulegur sem nú geta nýtt þá miklu þekkingu, reynslu og getu sem Kæling – Víkurafl býr yfir. Fyrirtækið er nú í stakk búið til að annast mun stærri og flóknari verkefni en áður. Viðskiptavinir geta náð fram mun hagkvæmari verkefnum og einfaldari samskiptum í tengslum við þau með því að nýta sameinaða krafta Kælingar og Víkurafls.“

Sagt er að mikil sókn sé framundan og er sérstaklega vísað til umhverfisvænna kælikerfa og –lausna. Hefur Kæling um nokkurt skeið unnið að þróun umhverfisvænna kælilausna og er bæði gert ráð fyrir að viðskiptavinir geta keypt ný kerfi sem og að breytingar verði gerðar á eldri kerfum þannig að þau nýta umhverfisvænni kælimiðla eins og koltvísýring.

til baka