Dill, fyrsti Michelin-stjörnu veitingastaður Íslands, mun opna dyr sínar að nýju á morgun, þann 20. nóvember, eftir umfangsmiklar breytingar. Búið er að opna fyrir bókanir að nýju, en staðurinn nýtti tækifærið og skipti einnig um bókunarkerfi. Veitingastaðurinn mun héðan af nota nýtt borðabókunarkerfi íslenska sprotafyrirtækisins Noona, sem meðal annars býður veitingahúsum upp á beina tengingu við netúgáfu Michelin leiðarvísisins, að því segir í tilkynningu frá Dill og Noona.
Hefur verið leiðandi í íslenskri matargerð
Dill hefur verið leiðandi í íslenskri matargerð síðan staðurinn hlaut Michelin-stjörnu árið 2017 og hefur markað sér nafn sem einn af fremstu veitingastöðum Norðurlandanna. Breytingarnar hófust í byrjun nóvember en meðal annars var móttökusvæði veitingastaðarins breytt, eldhúsið opnað og grunnurinn lagður að nýrri nálgun í þjónustu og upplifun, samkvæmt Instagram pósti Dill.
Þar að auki var svo skipt um bókunarkerfi með það að leiðarljósi að sameina nýjustu tækni og einstaka upplifun gesta.
„Við erum afar stolt að vinna með Noona og bjóða gestum okkar enn þægilegri bókunarupplifun,“ segir Gunnar Karl Gíslason, yfirkokkur og eigandi Dill. „Kerfið hjálpar okkur að einfalda bókunarferlið fyrir viðskiptavini og tryggja að hver heimsókn á Dill verði ógleymanleg. Michelin tengingin er mikilvæg fyrir okkur, en þar að auki er Noona kerfið með öfluga biðlistavirkni sem hentar okkur mjög vel, enda sjaldan lítið að gera.“
Borðbókunarkerfið ný vara
Borðabókunarkerfið er ný vara frá íslenska sprotafyrirtækinu Noona sem hefur vakið athygli fyrir notendavænar lausnir fyrir veitingastaði og þjónustufyrirtæki. Hugbúnaðarlausnir Noona hafa hlotið mörg verðlaun, en appið þeirra valið app ársins 2023 af SVEF og hefur fyrirtækið verið fremst í flokki vefþjónusta tvö ár í röð í árlegri meðmælakönnun Maskínu.
Þessar breytingar og samstarf Dill við Noona markar nýtt tímabil í sögu veitingastaðarins, þar sem nútímatækni og hágæða matarupplifun sameinast á einstakan hátt.
Eins og áður sagði mun veitingastaðurinn Dill opnar aftur á morgun, þann 20. Nóvember og bókanir eru nú þegar opnar í gegnum nýja bókunarkerfið hjá Noona.