Söngkonan Cher var svo full örvæntingar yfir „ástlausu hjónabandi“ hennar og Sonny Bono að hún íhugaði að henda sér fram af svölum hótelsvítunnar þeirra í Las Vegas. Þetta kemur fram í nýrri endurminningabók hennar.
Í bókinni er gefin mynd af Cher, þá 25 ára, þegar hún hafði hrapað niður í tæp 45 kíló sökum álags.
Ákveðinn vendipunktur varð í október 1972 þegar parið – sem er hvað þekktast fyrir lagið I Got You Babe – var í Las Vegas og hélt tvenna tónleika kvöld eftir kvöld á Congo Room á Sahara-hótelinu.
Cher var gjörsamlega uppgefin þegar Sonny tilkynnti henni að hann hefði skrifað undir samning fyrir hönd þeirra beggja um að koma fram á Caesars Palace í Vegas á hverju sumri í ótiltekinn fjölda ára. Á sama tíma og þau unnu vinsæla gamanþætti fyrir CBS og ólu upp barnið sitt, Chas.
„Ég vil sofa hjá Bill“
Cher minnist þess að hafa stigið berfætt út á svalir hótelsvítunnar og starað niður. Á meðan hún stóð þar flaug í gegnum hugann hve auðvelt væri að stíga yfir brúnina og láta sig hverfa.
Þetta segist hún hafa gert nokkrum sinnum áður en hún hugsaði í síðasta skiptið að hún þyrfti ekki að stökkva heldur aðeins að yfirgefa Sonny, manninn sem hún kynntist þegar hún var 16 ára og hann 27 ára.
Hún steig aftur inn í hótelherbergið og sagði: „Ég vil sofa hjá Bill,“ og átti þar við gítarleikarann í hljómsveitinni. Hún segist ekki hafa meint þetta en að Sonny, sem var svo stjórnsamur, hafi ekki hlustað á fyrri beiðnir hennar um að slíta sambandinu.
Þögnin var þrúgandi en hann hafi svo spurt hvað hún þyrfti langan tíma. Hún svaraði honum að hún þyrfti tvær klukkustundir en endaði á að gráta við öxl Bills alla nóttina.
Daginn eftir bað hún Sonny um 500 dollara til að yfirgefa hann og komst þá að því að hann hafði sofið hjá kærustu Bills í hefndarskyni. Cher og Bill flugu til San Francisco með einkaspæjara á vegum Sonny á hælunum.
Cher segir þau hafa bókað hótelherbergi og stundað „ótrúlegt kynlíf“. Upp frá því vissi Cher að hún myndi aldrei stunda kynlíf með Sonny aftur.