þri. 19. nóv. 2024 14:50
Jón Þór Júlíusson brosir sínu breiðasta í dag eftir undirritun samnings um fimm ára leigu á Tungufljóti í Skaftafellssýslu. Hér er hann reyndar með lax en í dag er sjóbirtingurinn honum efstur í huga.
Hreggnasi tekur við Tungufljóti

Samningar hafa tekist milli Hreggnasa ehf og stjórnar Tungufljótsdeildar Veiðifélags Kúðafljóts um leigu á Tungufljóti til næstu fimm ára. Hreggnasi var með hæsta tilboð í leigu á ánni þegar tilboð voru opnuð fyrir tæpum mánuði. Mikill áhugi var á ánni og bárust alls fimmtán tilboð í Tungufljótið frá sjö aðilum. 

Hreggnasi bauð 127,5 milljónir króna í leigu fyrir árin fimm sem voru í boði. Það jafngildir 25,5 milljónum fyrir hvert ár. Þetta er verðmætasti samningur sem Sporðaköst hafa upplýsingar um þegar kemur að leigu á sjóbirtingsá, eins og Tungufljótið er.

Jón Þór Júlíusson framkvæmdastjóri Hreggnasa staðfesti undirritun samningsins í samtali við Sporðaköst. „Já. Við undirrituðum samninginn í dag og ég skal alveg viðurkenna að mér finnst þetta mjög spennandi verkefni og er afskaplega hrifinn af Tungufljóti,“ upplýsti Jón Þór.

 

 

Síðustu ár hefur Fish Partner verið með Tungufljótið á leigu og bauð það félag 125 milljónir í fimm ára samning. Voru því býsna nálægt Hreggnasa.

mb

Jón Þór segir að mikill áhugi sé fyrir veiðileyfum í Tungufljóti og þá sérstaklega haustveiðinni. „Staðan er bara þannig að ég gæti selt þá mánuði tvisvar eða jafnvel þrisvar miðað við fyrirspurnir.“

Um er að ræða mikla hækkun frá fyrri samningi og viðurkennir Jón Þór að veiðileyfin muni hækka fyrir næsta tímabil. Hann segir jafnframt að sjóbirtingsveiðin í Tungufljóti sé á heimsklassa og það sé útbreidd vitneskja í hópi hans viðskiptavina sem margir hverjir sæki slíka veiði til Argentínu með miklum kostnaði og löngu ferðalögum.

„Já. Ég skal alveg viðurkenna að ég er mjög skotinn í þessu svæði og hlakka til að hlúa að því og reka,“ sagði hann kátur.

Jón Þór fyrir hönd Hreggnasa og Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra í starfsstjórn og formaður Tungufljótsdeildarinnar undirrituðu samninginn í dag.

til baka