Grunur er uppi um að kínverskt skip hafi átt hlut í rofi sæstrengja í Eystrasalti. Þetta herma heimildir sænska ríkismiðilsins SVT.
Skipið sem um ræðir var á leið frá rússneskri höfn í Eystrasaltinu á svipuðum tíma og strengirnir rofnuðu.
Greint var frá því í gær að sæstrengir á milli Finnlands, Þýskalands, Svíþjóðar og Litháen hefðu rofnað. Talið er að skorið hafi verið á strengina vísvitandi.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/11/18/annar_saestrengur_rofinn_sviar_a_vardbergi/
Veita skipinu eftirför
Skip danska sjóhersins hjó eftir ferðum kínverska skipsins og veitti því eftirför á leið sinni úr Eystrasaltinu og um Kattegat.
Fleiri skip á vegum Atlantshafsbandalagsins hafa fylgst með ferðum skipsins síðasta rúma sólarhringinn.
Heimildir SVT herma að yfirvöld í Svíþjóð fylgist einnig grannt með skipinu sem um ræðir en þau hafa ekki viljað tjá sig um skipið að svo stöddu.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/11/19/segja_skemmdarverk_unnin_a_saestrengjum/