þri. 19. nóv. 2024 23:28
Kenan Yildiz fagnar marki sínu í Svartfjallalandi í kvöld.
Wales vann riðilinn – Tyrkir í umspil

Wales fagnaði sigri í 4. riðli B-deildar Þjóðadeildar karla í knattspyrnu, riðli Íslands, en þetta varð ljóst eftir 4:1-sigur liðsins gegn Íslandi í Cardiff í kvöld.

Á sama tíma vann Svartfjallaland óvæntan sigur gegn Tyrklandi, 3:1, í Niksic í Svartfjallalandi þar sem Nikola Krstovic gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Kenan Yildiz skoraði eina mark Tyrkja á 37. mínútu þegar hann jafnaði metin í 1:1.

https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/11/19/skellur_i_cardiff_thratt_fyrir_glaesilega_byrjun/

Með sigrinum tryggði Wales sér sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar á næsta keppnistímabili en Tyrkland, sem hafnaði í öðru sætinu, fer í umspil um sæti í A-deildinni þar sem liðið mætir annaðhvort Skotlandi, Belgíu, Ungverjalandi eða Serbíu.

Ísland endaði í þriðja sæti riðilsins með sjö stig og mætir annaðhvort Slóvakíu, Kósovó, Búlgaríu eða Armeníu í umspili um sæti í B-deildinni. Svartfjallaland er fallið í C-deild.

Dregið verður í umspilið og átta liða úrslit keppninnar í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss á föstudaginn en umspilsleikirnir verða leiknir dagana 20. mars og 23. mars.

til baka