mið. 20. nóv. 2024 08:02
Liam Payne árið 2018.
Jarðarför Liams Payne í dag

Jarðarför Liams Payne, sem sló í gegn í One Direction, fer fram í dag, um mánuði eftir að hann lést, aðeins 31 árs gamall.

afa

Búist er við því að fyrrverandi félagar hans úr hljómsveitinni verði viðstaddir jarðarförina ásamt fjölskyldu hans og nánustu vinum, að sögn BBC.

Payne lést eftir að hafa fallið niður af svölum á þriðju hæð hótels í Buenos Aires í Argentínu.

til baka