Brasilía og Úrúgvæ gerðu jafntefli, 1:1, í undankeppni Suður-Ameríku fyrir HM 2026 í Salvador í Brasilíu í nótt.
Brasilía hefur spilað langt undir væntingum í undankeppninni og er í fimmta sæti riðilsins með 18 stig eftir tólf leiki. Úrúgvæ er í öðru sæti með 20 stig.
Federico Valverde kom Úrúgvæ yfir á 55. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Gérson metin og þar við sat, 1:1.