Hönnunarsamkeppni stendur nú yfir um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa og sturtuaðstöðu. Samtökin ‘78, Trans Ísland, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Félag íslenskra teiknara standa fyrir keppninni.
Niðurstaða samkeppninnar verður kynnt á HönnunarMars 2025 og veitt verða ein verðlaun að upphæð kr. 1.000.000.
Formaður Samtakanna 78 segir allmögulegt að merkið sem vinnur keppnina geti verið notað á alþjóðavísu sem tákn fyrir kynhlutlaust rými enda sé Ísland leiðandi ríki í málefnum trans fólks.
„Ég held sannarlega að þessi keppni getur vakið athygli mun víðar og veit raunar til að hún verður auglýst víðar á Norðurlöndunum,“ segir Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, í samtali við mbl.is.
Keppnin kynnt á alþjóðlega klósettdeginum
„Við erum náttúrulega vön því að nota þetta týpíska karla-konu merki, en okkur langar i eitthvað betra, eitthvað sem nær utan um þetta kynhlutleysi, [...] eitthvað mekri sem má aðlaga að ýmsum stílum. Eitthvað alþjóðlegt.“
Á árinu tók gildi reglugerð um að merkja beri salerni eftir aðstöðu fremur en kynjum og segir Bjarndís keppnina vera svar við þeim lagabreytingum.
„Við þurfum náttúrulega öll að vita hvar við getum farið á klósettið,“ segir Bjarndís, en keppnin var kynnt í gær, á alþjóðlega klósettdeginum.
„Þetta er frábært tækifæri til að auðga klósettmenninguna,“ bætir hún við að lokum og hlær við.