Fyrrverandi liðsmenn sveitarinnar One Direction voru við útför félaga síns, Liam Payne í dag. Útför Payne, sem lést 16. október í Buenos Aires í Argentínu, var gerð frá St. Marys-kirkju í Amersham í Buckinghamskíri á Englandi.
Harry Styles, Zayn Malik, Niall Horan og Louis Tomlinson komu saman í fyrsta skipti í næstum níu ár við athöfnina.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/11/20/jardarfor_liams_payne_i_dag/
https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/10/16/liam_payne_er_latinn/
Kistan á hestvagni
Styles mætti fyrstur af liðsmönnum sveitarinnar og var myndaður í bak og fyrir meðal fjölskyldu og vina hins látna.
Simon Cowell, X Factor dómarinn kunni sem setti saman sveitina One Direction, var einnig viðstaddur jarðarförina ásamt unnustu sinni, Lauren Silverman.
Komið var með kistu Payne að kirkjunni með hestvagni og hún síðan borin inn.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/10/17/vid_bidjum_um_frid_til_ad_syrgja/
Payne var 31 árs gamall þegar hann lést eftir fall af þriðju hæð hótels í Buenos Aires. Hann lætur eftir sig soninn Bear sem hann á með Cheryl Tweedy.
Lögregla rannsakar nú andlát Payne, en þrír hafa verið handteknir vegna dauða hans.
Strákahljómsveitin One Direction skaust hratt upp á stjörnuhimininn og gaf út alls fimm plötur áður en sveitin lagði upp laupana árið 2016. Hljómsveitarmeðlimirnir fimm sáust aldrei saman opinberlega eftir það.