Isavia hefur valið tilboð þýska fyrirtækisins Heinemann í sérleyfi og aðstöðu til rekstrar fríhafnarverslunarinnar á Keflavíkurflugvelli. Búist er við því að fyrirtækið taki við rekstri Fríhafnarinnar í mars.
Heinemann rekur um 500 verslanir í 100 löndum og hefur mikla reynslu af rekstri fríhafnarverslana, þar sem fyrirtækið rekur m.a. slíkar verslanir á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn og á Gardermoen-flugvelli í Osló. Starfsfólk Heinemann er ríflega 9 þúsund talsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia en þar segir að tilboðið sé valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs.
Nú taki við biðtími næstu tvær vikur þar sem þeir aðilar sem urðu af samningnum hafa tækifæri til að gera athugasemdir við niðurstöðurnar. Að því liðnu sé gengið til samninga og Heinemann taki við rekstrinum í mars.
Eigi að skila ávinningi fyrir farþega
Haft er eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, að með þessari breytingu aukist tekjur flugvallarins verulega um leið og hægt sé að auka þjónustu og bæta vöruúrval.
„Ákvörðunin um töku tilboðsins byggir eingöngu á því mati að þessi breyting skili ávinningi fyrir farþega, flugvöllinn og samfélagið í heild,” er haft eftir framkvæmdastjóranum.
Gerð var markaðskönnun sem auglýst var á evrópska efnahagssvæðinu í september 2023 og formlegt útboðsferli hófst í kjölfarið.
Boðið hafi verið út sérleyfi á rekstri fríhafnarverslana sem í dag eru reknar undir merkjum Fríhafnarinnar ehf., dótturfélags Isavia ohf. Útboðið var með sama fyrirkomulagi og þegar boðin er út aðstaða fyrir aðrar verslanir og veitingastaði í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Guðmundur Daði segir enn fremur að með áframhaldandi þróun Keflavíkurflugvallar og auknum tekjum til þeirrar þróunar fjölgi tækifærum til að bæta við flugtengingum. Það hafi bein áhrif inn í hagkerfið en Alþjóðasamtök flugvalla í Evrópu hafi gefið það út að 10% aukning í beinum flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% í viðkomandi landi.