Kínverska flutningaskipið Yi Peng 3 hefur legið við akkeri á miðju Jótlandshafi á milli Svíþjóðar og Danmerkur frá því í gærkvöldi.
Yfirvöld í Danmörku hafa ekki viljað tjá sig um það sem virðist vera kyrrsetning skipsins en opinber kortagögn sýna herskip danska sjóhersins við hlið fragtskipsins eins og í gærkvöldi, þó annað og minna skip hafi komið í stað skipsins HDMS Søløven sem þá gætti þess kínverska.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/11/19/hefur_numid_stadar_i_fylgd_danskra_herskipa/
Verjast fregna
Grunsemdir eru uppi um að flutningaskipið hafi átt þátt í skemmdarverkum á tveimur sæstrengjum sem liggja á milli Finnlands og Þýskalands annars vegar og Litháen og Svíþjóðar hins vegar.
Sænska ríkisútvarpið greinir frá því að sænsk herskip hafi verið kölluð út til að skoða skemmdir á sæstrengjunum tveimur.
Herskipin virðast sigla sömu slóð og kínverska skipið gerði í kringum sæstrengina samkvæmt kortagögnum.
Danski miðillinn Berlingske segir yfirvöld í Danmörku ekki vilja játa aðkomu sína að kyrrsetningu skipsins en þau segjast fylgjast með skipinu.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/11/20/danir_og_sviar_utiloka_ekki_skemmdarverk/