mið. 20. nóv. 2024 18:28
Fólk sem er ekki í bráðri hættu gæti þurft að bíða lengur en ella eftir þjónustu.
Aukið álag á bráðamóttöku og boð send út

Mikið álag er á deildum Landspítalans og bitnar það helst á bráðamóttökunni í Fossvogi.

Spítalinn biðlar til fólks sem er ekki í bráðri hættu að leita fyrst í síma 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru. Í neyðartilfellum skal alltaf hringja í neyðarlínuna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Landspítalans. 

„Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika. Við aðstæður eins og nú getur fólk sem er ekki í bráðri hættu því þurft að bíða lengur en annars eftir þjónustu,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu spítalans. 

 

 

 

til baka