Áhrifavaldurinn og einkaþjálfarinn Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, hefur fengið félagaskipti til KV í körfuknattleik.
Karfan.is vekur athygli á skiptunum, sem eru formlega skráð á heimasíðu KKÍ.
Hann er 26 ára gamall en ekki liggur fyrir hvort Guðmundur Emil muni koma til með að spila eitthvað með KV á tímabilinu en hann er í það minnsta gjaldgengur til þess frá því í gær.
KV hefur hafið tímabilið í 1. deild vel þar sem liðið er í sjötta sæti með átta stig eftir sjö leiki. KV kom upp úr 2. deild á síðasta tímabili.