mið. 20. nóv. 2024 18:20
Brian Riemer, þjálfari danska landsliðsins.
Stysti fréttamannafundur sögunnar?

Brian Riemer, þjálfara danska karlalandsliðsins í knattspyrnu, virtist nokkuð skemmt þegar fréttamannafundur eftir leik liðsins gegn Serbíu í A-deild Þjóðadeildarinnar reyndist afar stuttur.

Riemer tók sér sæti, reiðubúinn að svara spurningum viðstaddra í Leskovac í Serbíu á mánudagskvöld.

Króatía og Danmörk tóku síðustu sætin

Leiknum lauk með markalausu jafntefli sem þýddi að Danmörk tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar.

Aðeins 20 sekúndum eftir að Riemer settist niður stóð hann aftur upp því ekki ein einasta spurning var borin upp.

Myndskeið af hugsanlega stysta fréttamannafundi sögunnar má sjá hér:

 

 

til baka