Kvika hefur brotið sér leið upp á yfirborðið sjö sinnum frá því hamfarirnar gengu yfir Grindavík 10. nóvember í fyrra en sjöunda eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni hófst klukkan 23.14 í gærkvöld.
Alls eru eldgosin orðin tíu talsins á Reykjanesskaganum frá því nýtt gosskeið hófst á skaganum í mars 2021.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/11/09/eitt_ar_lidid_fra_mestu_natturuhamforum_aldarinnar/
Fyrsta eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni braust út 18. desember í fyrra og gosið sem hófst í gærkvöld er það sjötta á þessu ári á gígaröðinni.
Fyrsta gosið á árinu hófst 18. janúar, annað gosið 8. febrúar, það þriðja 16. mars, fjórða gosið hófst 29. maí, það fimmta 22. ágúst og það sjötta 20. nóvember.
Lengsta gosið á Sundhnúkagígaröðinni stóð yfir í 53 daga. Það gos hófst 16. mars og stóð til 8. maí.