fim. 21. nóv. 2024 08:42
Julen Lopetegui.
Starf Spánverjans hangir á bláþræði

Starf spænska knattspyrnustjórans Julen Lopetegui hangir á bláþræði hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham.

Spánverjinn tók við stjórnartaumunum hjá félaginu í sumar en liðið hefur ekki byrjað tímabilið vel og er með 12 stig í 14. sæti deildarinnar eftir fyrstu ellefu umferðirnar.

Breski miðillinn The Guardian greinir frá því að spænski stjórinn fái tvo leiki til þess að snúa genginu við. Ef það tekst ekki á hann það á hættu að missa starfið.

Næstu tveir leikir liðsins eru útileikur gegn Newcastle, 25. nóvember, og svo heimaleikur gegn Arsenal, 30. nóvember,  en bæði lið hafa verið að spila vel í upphafi tímabilsins.

til baka