fim. 21. nóv. 2024 10:48
Guðmundur Rafn Ingason.
Úr Árbænum í Garðabæinn

Knattspyrnumarkvörðurinn Guðmundur Rafn Ingason er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna á nýjan leik.

Markvörðurinn, sem er tvítugur, kemur til félagsins frá Fylki þar sem hann hefur leikið frá árinu 2022.

Hann lék einn leik með liðinu í Bestu deildinni í sumar þegar Fylkismenn höfnuðu í 12. og neðsta sæti deildarinnar og féllu í 1. deildina.

til baka