Handboltamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson, fyrirliði ÍBV, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd Handknattleiksambands Íslands.
Kári var úrskurðaður í bann vegna atviks sem átti sér stað í leik Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla á Ásvöllum þann 17. nóvember.
„Um var að ræða illkvittna aðgerð gegn óviðbúnum mótherja,“ segir meðal annars í úrskurði aganefndar.
„Er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í tveggja leikja
bann,“ segir ennfremur í úrskurðinum.
Hann missir því af næstu tveimur leikjum ÍBV gegn HK, 22. nóvember í Kórnum, og gegn Val, 30. nóvember í Eyjum, en ÍBV er með 11 stig í 6. sæti úrvalsdeildarinnar.