fim. 21. nóv. 2024 15:45
Helgi Pétursson er formaður Félags eldri borgara.
Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum

Landssamband eldri borgara stendur í dag fyrir kosningafundi með frambjóðendum allra flokka sem bjóða fram á landsvísu.

Málefni fundarins verða þau mál sem brenna mest á eldri borgurum þessa lands, svo sem; kjaramál, heilbrigðismál og húsnæðismál.

Fundurinn verður haldinn í Húsi Fagfélaganna og stendur frá klukkan 16 til 18.

Streymt verður frá fundinum hér á mbl.is. 

 


 

Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu munu kynna sín stefnumál í þeim málaflokkum sem snúa að eldri borgurum og að því loknu verða pallborðsumræður þar sem spurningum almennings verður beint til frambjóðenda.

Fundarstjóri verður Arnar Páll Hauksson.

 

til baka