lau. 7. des. 2024 21:00
Fréttin birtist á vef New York Times í gær.
Íslenskar fasteignir í New York Times

„Þetta getur þú fengið fyrir $570.000 á Íslandi.“

Svona hljóðar færsla fjölmiðilsins New York Times þar sem samantekt fasteigna á Íslandi sem kosta um 80 milljónir íslenskra króna er deild.

Umfjöllunin birtist í gær og hefur töluverður fjöldi brugðist við henni og skrifað athugasemdir við hana.

Í umfjölluninni eru þrjár fasteignir nefndar sem eru staðsettar annars vegar í Grímsnesi og hins vegar á Norðurstíg og Unnarstíg í Vesturbænum og kemur þar fram að þær kosti um 80 milljónir króna. 

Allar fasteignirnar eru aðgengilegar á fasteignavef mbl.is.

Norðurstígur 5

Unnarstígur 4

Þórisstaðir 2

til baka