Það eru margir sem eiga afgang af hangikjöti eftir jólamatarboðin síðustu daga og þá er lag að nýta það og töfra fram eitthvað gott. Það er til að mynda upplagt að nota afgangana í hangikjötssalat og þá er líka hægt að nýta baunirnar ef eitthvað er eftir af þeim.
Á milli jóla og nýárs er fátt sem toppar góða brauðsneið með hangikjötssalati þar sem jólahangikjötið kemur við sögu. Bragðmikið hangikjöt með silkimjúku majónesi, eggjum og baunum og gulrótum úr dós er galdurinn.
Valgerður Gréta Gröndal matarbloggari, alla jafna kölluð Valla, útbjó þetta gómsæta hangikjötssalat og fékk sér það ofan á danskt rúgbrauð og þá er þetta orðið eins ekta smurbrauð. Mjög aðlaðandi framsetning og skemmtilegt að bjóða upp á smurbrauð á þessum árstíma.
Hangikjötssalat af betri gerðinni
- 300 g soðið hangikjöt, skorið í litla teninga
- 4 harðsoðin egg
- 1 dós gulrætur og grænar baunir
- 250 g Heinz, Seriously good mayonnaise
- Salt og svartur pipar, eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða eggin og kæla þau alveg.
- Setjið baunirnar og gulræturnar í sigti og látið vökvann renna vel af.
- Skerið hangikjötið í bita og setjið í skál ásamt eggjum og baunum.
- Blandið varlega saman.
- Setjið majónesið út í og blandið saman með sleikju.
- Smakkið til með salti og svörtum pipar.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist.