Í kringum 400 manns voru saman komnir í Seltjarnarneskirkju í morgun þegar árlega kirkjuhlaupið hófst.
Er þetta í 14. skiptið sem hlaupið er haldið en það hefst við Seltjarnarkirkju og er svo hlaupið hring þar sem farið er fram hjá 13 kirkjum á leiðinni.
Hlaupið er á vegum Trimmklúbbs Seltjarnarness og segir formaður klúbbsins, Ragnar Steinn Ragnarsson, mætinguna hafa verið vonum framar en klúbburinn átti von á minni mætingu en vanalega sökum veðurs.
Það var þó ekki raunin og segir Ragnar að um 350-450 hafi verið mættir sem sé svipað og undanfarin ár.
Hlaup til að hafa gaman
Hlaupararnir hlaupa svo yfir 14 kílómetra þar sem farið er fram hjá ýmsum kirkjum á borð við Landakotskirkju, Hallgrímskirkju og Fossvogskapellu.
Þá býður Dómkirkjan upp á tónlistaratriði fyrir utan kirkjuna þegar hlauparana ber að garði og einnig geta þeir litið inn í kaffi og smákökur hjá kirkju Óháða safnaðarins.
„Þetta er ekki keppnishlaup heldur hlaup til að hafa gaman,“ segir Ragnar og tekur fram að reynt sé að halda hópinn á milli kirkna.
Þá var hlaupurunum svo boðið upp á kakó og smákökur þegar komið var aftur í hús Seltjarnarneskirkju að hlaupahringnum loknum.
Kirkjurnar á hlaupaleið hópsins eru alls þrettán talsins og eru eftirfarandi:
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan, Landakotskirkja, Dómkirkjan, Fríkirkjan, kirkja aðventista, Hallgrímskirkja, Háteigskirkja, kirkja Óháða safnaðarins, Fossvogskapella, kapellan Hlíðarenda, Háskólakapellan, Neskirkja og Seltjarnarneskirkja.