lau. 25. jan. 2025 19:00
Teitur Riddermann Schiöth forseti Barþjónaklúbbs Íslands, vinningshafiinn í fyrra, Martin Cabejsek, Ólafur Andri Benediktsson og Jakob Alf Arnarsson
Glæsilegir vinningar í boði í kokteilakeppni Tipsý & Bulleit

Framundan í byrjun febrúar verður haldin kokteilakeppni Tipsy og Bulleit en hún verður haldin 3. og 5. febrúar. Það verður mikið um dýrðir, þemað í ár verður amerískt og vinningarnir stórglæsilegir að því er kemur fram í tilkynningu frá Tipsý bar.

Allir barþjónar og áhugafólk um kokteila geta tekið þátt og skráð sig til leiks en tólf innsendingar verða valdar í forkeppni mánudaginn 3. febrúar og fimm kokteilar keppa svo til úrslita miðvikudaginn 5. febrúar.

Kynnarnir í úrslitakeppni verða gleðigjafarnir Auðunn Blöndal og Steindi og um tónlistina mun DJ Sóley sjá um með sinni alkunnu snilld.

 

Vinningarnir verða ekki af verri endanum

Í aðalvinning er 200.000 króna gjafabréf hjá PLAY og fjöldi veglegra aukavinninga.

Hver þátttakandi, sem sendir inn kokteil sem uppfyllir skilyrði innsendingar, fær eitt 5.000 króna gjafabréf sem gildir á sex af vinsælustu veitingastöðum Reykjavíkur. Þetta eru veitingastaðirnir Apotek kitchen + bar, Fjallkonan krá & kræsingar, Sushi Social, Sæta Svínið gastropub, Tapasbarinn og Tres Locos.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni eru beðnir að senda á eftirfarandi netfang keppni@tipsybar.is fyrir 1. febrúar næstkomandi

Innsending þarf að innihalda eftirfarandi:

Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðunni hjá Tipsý bar hér.

 

 

til baka