Reykjavíkurleikunum í sundi lauk nú í kvöld. Um 350 keppendur tóku ţátt í mótinu ađ ţessu sinni ţar af komu rúmlega 100 erlendis frá. Mótiđ var mjög sterkt í ár og fengu íslensku keppendurnir oft mjög harđa keppni.
Danska sundkonan Martine Damborg frá Svřmmeklub Kvik Kastrup tryggđi sér besta afrek mótsins ţegar hún synti 50m baksund á tímanum 28,8. Fyrir ţađ sund hlaut hún 807 stig.
Einar Margeir Ágústson stóđ sig best af íslensku keppendunum en hann vann annađ besta afrek mótsins ţegar hann synti 100m bringusund á tímanum 1:01.23 en fyrir ţađ fćr hann 801 stig. Einar bćtti tíma sinn um rúma sekúndu.
Ţess má geta ađ íslandsmetiđ í greininni á Anton Sveinn McKee, 1:00.21. Einar Ágúst gerđi sér lítiđ fyrir og tryggđi sér lágmark bćđi í 50m og 100m bringusundi á HM50 sem fram fer í júlí í Singapúr.
Snorri Dagur Einarsson vann ţriđja besta afrekiđ á mótinu ţegar hann synti 50m bringusund á 28,5.3 Fyrir ţađ sund hlaut hann 758 stig.
Ţađ voru ţau Goncalo Carlos Azevedo frá Portugal og Kay-Lyn Löhr frá Sviss sem unnu fjórđa besta afrekiđ á mótinu. Azevedo fyrir 100m skriđsund ţegar hann synti á 51,14, en fyrir ţađ sund hlaut hann 746 stig. Löhr hlaut nákvćmlega sama stigafjölda fyrir 200m fjórsund ţegar hún synti á 2:19,03.
Höfđu stađiđ í mörg ár
Fjögur mótsmet voru sett á mótinu í ár. Höfđu mörg ţeirra stađiđ í mjög mörg ár. Mótsmetin sem sett voru á mótinu:
Attila Polster frá Sviss bćtti mótsmetiđ í 400m fjórsundi ţegar hann synti á 4:34,38 og rauf ţar međ tíu ára gamalt met Sindra Ţór Jakobssonar. Ţetta eru ađrir Reykjavíkurleikar Attila.
Goncalo Carlos Azevedo frá Portúgal bćtti 19 ára gamalt met í 100m skriđsundi ţegar hann synti 100m á tímanum 51,14. Gamla metiđ átti Örn Arnarson sem hann setti áriđ 2006, 51,67.
Danska sundkonan Martine Damborg átti mjög gott mót ţegar hún setti tvö mótsmet. Hún setti nýtt met í 200m fjórsundi á tímanum 2:18,15 og braut ţar međ tveggja ára gamalt met Beatrice Berley. Hún bćtti einnig 18 ára gamalt met í 100m flugsundi ţegar hún synti á tímanum 1:00,86 sem var áđur í eigu Slóvensku Ólympíustjörnunnar Martinu Moravcovu, 1.00,88.
Átta Íslandsmet féllu
Keppendur í flokki fatlađra hafa einnig sýnt glćsilegan árangur á mótinu. Átta Íslandsmet féllu á mótinu og setti Snćvar Örn Kristmannsson frá Reykjavík sjö ţeirra í flokki S14 og Sigrún Kjartansdóttir frá Firđi setti eitt í flokki S16 í 200m frjálsri ađferđ:
Alexander Hillhouse frá Kvik í Danmörku vakti einnig mikla athygli en hann varđ í 3. sćti í úrslitum í opnum flokki í 200m flugsundi. Alexander synti einnig 50m flugsund á tímanum 25,28 og var einungis 18 hundruđustu úr sekúnu frá danska metinu.
Mohammad Shams Aalam Shaikh frá Indlandi setti Indverskt og Asíu met í 200 m bringusundi í flokki SB4 ţegar hann synti á tímanum 5.37,21
Besti árangur í karlaflokki fatlađra á mótinu hlaut Alexander Hillhouse, frá KVIK, Kastrup Danmörk fyrir 50 m flugsund en fyrir ţađ fékk hann 1089 stig. Í kvenna flokki var ţađ Oddvá Sedea D. Nattestad, Havnar Svimjifelag fyrir 50 m skriđsund en fyrir ţađ sund fékk hún 585 stig
Ţá er virkilega flottu móti á Reykjavíkurleikunum lokiđ međ fínum árangri og var umgjörđ sundkeppninnar til mikillar fyrirmyndar.