Kardashian- og Jennersysturnar hafa lengi þótt einir stærstu áhrifavaldar í tískuheiminum. Þær hafa þó sjaldan verið viðstaddar tískusýningar hátískuhússins Chanel, þar til nú, en Kylie Jenner sat á fyrsta bekk við hátískusýningu merkisins í morgun. Sýningar Chanel er einn stærsti viðburðurinn á tískuvikunni.
Kylie mætti í stuttum hvítum Chanel tweed-jakka og í stuttu pilsi í stíl. Skórnir hennar voru með lágum hæl úr svörtu lakki. Tískuhúsið er hvað þekktast fyrir tweed-efnið sem er ull ofin saman við önnur hágæðaefni eins og silki, alpaka-ull eða kasmír-ull. Þetta gefur efninu einstaka áferð.
Þó að Kardashian-fjölskyldan geti eflaust komið sér á fremsta bekk allra tískusýninga heims hefur hún verið fjarri góðu gamni á Chanel. Árið 2016 var Kris Jenner, móðirin, mætt á fremsta bekk í boði Karl Lagerfeld sem var listrænn stjórnandi í fjölda ára. Hann lést árið 2019.