Ásgeir Kolbeinsson athafnamaður fagnaði 50 ára afmæli sínu á Tenerife á 11. janúar í glæsilegri villu. Veislan byrjaði klukkan 12.30 og stóð yfir í 12 klukkutíma. Auddi og Steindi skemmtu gestum ásamt Selmu Björnsdóttur og fleiri listamönnum. Á svæðinu var töframaður og nóg af mat og drykkjum. Þegar líða fór á kvöldið var hækkað í tónlistinni og plötusnúður spilaði af miklum móð við undirleik saxafónleikara.
Ef einhver kann að pródúsera gott djamm þá er það Ásgeir sem hóf feril sinn sem útvarpsstjarna. Þá var hann í menntaskóla og skar sig úr hópnum því hann var töluvert betur akandi en samnemendur sínir. Hann keyrði um á nýjum Nissan Sunny með einkanúmerinu Ásgeir. Svo fór hann að vinna í sjónvarpi, varð skemmtanastjóri og skemmtistaðaeigandi en í dag rekur hann fyrirtækið Orkugreining ásamt Heru Gísladóttur og Gunnlaugi Guðmundssyni stjörnuspekingi en þau hafa haldið úti hlaðvarpsþáttunum Stjörnuspeki - orkugreining.
Ásgeir uppgötvaði sólríku eyjuna við Afríkustrendur í janúar 2021. Síðan þá hefur hann heimsótt eyjuna á hverju ári í janúar í kringum afmælið sitt. Hann segir að það sé í raun frekar glatað að eiga afmæli 11. janúar því þá séu allir ennþá hálfsofandi eftir veisluhöld jóla og áramóta. Því fannst honum tilvalið að halda afmælisveisluna á þessum sólríka stað.
„Mér fannst alveg tilvalið að halda afmælið núna því það er ekki sjálfgefið að afmæli komi upp á laugardegi. Í stað þess að halda eitthvað á Íslandi, þar sem fólk er hálfmyglað eftir jólin og áramótin, þá lá beinast við að halda þetta úti. Þeir sem myndu koma myndu koma,“ segir Ásgeir.
Datt niður á draumahúsið
Hann varði tíma í að skoða hús til að leigja en segir að margar villurnar og flottu húsin á Tenerife séu uppi í hlíðunum og það hefði verið erfitt að ferja fólk á milli. Óþarfa bras.
„Síðan duttum við inn á þetta hús. Þetta er sama hús og Svava í 17 hélt afmælið sitt í þegar hún varð 60 ára í fyrra. Það er ótrúlega vel staðsett, við Adeje ströndina, er í 10 mínútna radíus frá öllum helstu hótelum. Þess vegna völdum við það,“ segir Ásgeir.
Hvernig tilfinning er það að verða 50 ára?
„Tíminn er afstæður og mér finnst ég aldrei eldast. Ég átti vin sem dó í blóma lífsins og því á maður að njóta hvers dags sem maður lifir og fagna flestum áföngum. Ég er ánægður með að vera í toppstandi heilsulega séð. Það er í rauninni geggjað,“ segir Ásgeir.
Hvernig var afmælisdagurinn sjálfur?
„Afmælisdagurinn var eins og hann væri pantaður á netinu. Það var frábært veður allan tímann. Besta veðrið var þennan laugardag. Það var algert logn, 25 stiga hiti og glampandi sól. Dagurinn sem slíkur alveg fullkominn,“ segir Ásgeir og bætir því við að vindar geti alveg blásið á Tene og ský geti verið á lofti.
„Það hefði eyðilagt stemninguna ef veðrið hefði verið slæmt en ég var búinn að panta þetta í huganum og þetta gekk allt eftir,“ segir hann kátur.
Hvað fékkstu í afmælisgjöf?
„Það var töluvert af afmælisgjöfum sem voru ekki fluttar út. Ég á eftir að fá sumar af þeim eins og málverk af mér en það fékk ég frá vinum mínum. Svo fékk ég verk eftir Leif Ými með setningunni verð kominn eftir 15 20 mínútur en það er vísun í það hvað ég hef verið óstundvís síðustu 50 árin. Síðan fékk ég óvissuferðir, flugferðir og allskonar og síðan allskonar góð vín.“
Hvernig verður 2025 hjá þér?
„Við erum að byggja upp þetta fyrirtæki með Gulla, Gunnlaugi Guðmundssyni stjörnuspekingi, og höldum því áfram. Við erum að klára og erum að vinna í þýðingum fyrir erlenda markaði. Ætlum að fara í það um mitt þetta ár. Sömuleiðis eru að koma með nýjar vörur, barnabók, sem er eitthvað allir foreldrar vilja eiga fyrir börnin sín,“ segir Ásgeir.
Hvernig þá?
„Þetta er greining á barninu þínu, orkugreining. Þegar fólk eignast börn þá fær það einstakling í hendurnar en með barnabókinni ertu að fá upplýsingar um hvernig upplag barnsins er og hvað sé hægt að gera til þess að uppeldið verði sem best og barnið fái að njóta þeirra hæfileika sem það býr yfir,“ segir Ásgeir og segir frá því að hann og Hera hafi notað orkugreiningu á 10 ára son sinn.
„Í dag skiljum við hann miklu betur og hvað við þurfum að gera til þess að hann geti blómstrað,“ segir Ásgeir.