mið. 29. jan. 2025 13:24
Beatrice prinsessa af York og Edoardo Mapelli Mozzi.
Beatrice prinsessa orðin tveggja barna móðir

Beatrice prinsessa og eiginmaður hennar, Edoardo Mapelli Mozzi, eignuðust dóttur á miðvikudaginn í síðustu viku. Þetta er annað barn Beatrice og þriðja barn Mozzi.

Stúlkan, sem hefur hlotið nafnið Athena Elizabeth Rose, kom í heiminn um hádegisbil þann 22. janúar síðastliðinn.

Hjónin tilkynntu um fæðingu barnsins á Instagram-síðu bresku konungsfjölskyldunnar rétt í þessu.

Beatrice og Edoardo gengu í hjónaband þann 17. júlí 2020 og eignuðust fyrsta barn sitt, Siennu Elizabeth, rúmu ári síðar.

https://www.mbl.is/smartland/fjolskyldan/2021/09/20/beatrice_prinsessa_eignadist_dottur/

View this post on Instagram

A post shared by The Royal Family (@theroyalfamily)

 

 

 

til baka