mið. 29. jan. 2025 19:00
Jörundur Ragnarsson selur íbúðina sem er á besta stað við barnvæna götu í Reykjavík.
Jörundur selur íbúðina sem hann keypti 2007

Jörundur Ragnarsson leikari hefur sett íbúð sína við Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð í þríbýlishúsi. Jörundur festi kaup á íbúðinni árið 2007. 

Íbúðin er 86 fm en gólfflöturinn er meiri þar sem svefnhebergin, baðherbergið og eldhúsið eru að hluta til undir súð.

Jörundur fann ástina í örmum Magdalenu Björnsdóttur í heimsfaraldrinum árið 2021. Þau eignuðust son í maí í fyrra.

Jörundur og Magdalena eru nýtt par

Jörundur og Magdalena eignuðust son

 

Íbúðin er sjarmerandi og skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi eldhús og baðherbergi. Fallegt viðarparket er á öllum gólfflötum nema á baðherberginu þar sem gólfið er flotað og lakkað. 

Það kemur fram í fasteignaauglýsingunni að íbúðin hafi fengið gott viðhald síðustu ár. Tekið er fram að hverfið sé einstaklega barnvænt og gatan róleg einstefnugata.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Brávallagata 24 

til baka