Íþróttir Miðvikudagur, 31. júlí 2024

Grindavík Ragnheiður Björk Einarsdóttir er reyndur miðherji.

Tvær nýjar til Grindvíkinga

Kvennalið Grindavíkur fékk mikinn liðsauka í gær þegar tveir nýir leikmenn komu til liðs við félagið. Miðherjinn Ragnheiður Björk Einarsdóttir er kominn til liðsins frá Haukum en Ragnheiður lék einnig með Breiðabliki á síðasta tímabili Meira

Sambandsdeild Kristinn Steindórsson í baráttu við Veton Tusha í fyrri leik liðanna á Kópavogsvelli. Drita vann einvígið 3:1 samanlagt.

Slæma byrjunin reyndist örlagarík

Breiðablik lauk í gær keppni í Sambandsdeild karla í fótbolta, fjórum og hálfum mánuði fyrr en liðið gerði á síðasta ári þegar það komst alla leið í riðlakeppnina. Drita vann seinni leik liðanna í Podujevo í Kósovó í gær, 1:0, og einvígið þar með 3:1 samanlagt Meira

Noregur Selma Sól Magnúsdóttir snýr aftur til Rosenborg.

Selma aftur til Þrándheims

Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er komin aftur til Rosenborg í Noregi eftir rúmlega hálfs árs fjarveru en hún lék með liðinu 2022 og 2023 og skoraði þá sjö mörk í 50 leikjum í úrvalsdeildinni Meira

Gleði Tindastólskonur fagna Jordyn Rhodes eftir að hún jafnaði, 3:3, í uppbótartíma leiksins gegn Þór/KA.

Dramatík á Sauðárkróki

Tindastóll náði í dýrmætt stig í fallbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta á dramatískan hátt í gærkvöld á meðan keppinautarnir í Fylki og Keflavík töpuðu sínum leikjum. Á Sauðárkróki stefndi allt í sigur Þórs/KA þar sem Karen María… Meira

Dýfa Anton Sveinn McKee stingur sér til sunds í síðasta skipti á Ólympíuleikum í París í gærkvöld.

Anton kvaddi Ólympíuleikana

Anton Sveinn McKee í fimmtánda sæti í síðasta sundinu á Ólympíuleikum • Nokkuð frá Íslandsmeti sínu • Kveður stoltur þrátt fyrir að komast ekki í úrslit Meira

Barátta Georg Bjarnason úr Aftureldingu og Einar Ingvarsson úr Grindavík.

Afturelding í efri hlutann með útisigri gegn Grindavík

Afturelding er komin í sjötta sæti 1. deildar karla í knattspyrnu eftir góðan útisigur á Grindavík, 3:0, í Safamýrinni í Reykjavík í gærkvöld. Afturelding er nú með 20 stig í sjötta sæti en Grindavík er í níunda sæti með 17 stig Meira

Bætingar Snæfríður Sól Jórunnardóttir bætti sig töluvert í bæði 100 og 200 metra skiðsundi frá því í leikunum í Tókýó fyrir þremur árum.

Snæfríður bætti sig um 15 sæti

Snæfríður Sól Jórunnardóttir hafnaði í 19. sæti í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í París í gær. Snæfríður synti á 54,84 sekúndum og var hársbreidd frá því að bæta eigið Íslandsmet frá því á HM í Japan á síðasta ári er hún synti á 54,74 sekúndum Meira

Bandaríkin, með Simone Biles í aðalhlutverki, unnu öruggan sigur í…

Bandaríkin, með Simone Biles í aðalhlutverki, unnu öruggan sigur í liðakeppni kvenna í áhaldafimleikum á Ólympíuleikunum í París í gær. Biles hreppti þar með sitt fimmta ólympíugull en með henni í liðinu voru Jordan Chiles, Jade Carey og Sunisa Lee. … Meira

Fleiri greinar úr þessum flokki í vikunni

Þriðjudagur, 30. júlí 2024

Það getur verið skrautlegt að fjalla um Ólympíuleika í stórborg á borð við…

Það getur verið skrautlegt að fjalla um Ólympíuleika í stórborg á borð við París. Undanfarnir dagar hafa verið þeir fyrstu hjá ofanrituðum í frönsku höfuðborginni og þeir hafa verið heldur skrautlegir Meira

Ögurstund KR-ingurinn Finnur Tómas Pálmason stangar boltann í netið og jafnar metin fyrir Vesturbæjarliðið undir blálok leiksins gegn KA.

KR án sigurs í níu leikjum

KR og KA gerðu dramatískt jafntefli, 2:2, í 16. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Vesturbænum í gærkvöldi. Eftir leikinn eru liðin enn í áttunda og níunda sæti, KA í áttunda með 19 stig og KR í níunda með 15, þremur stigum fyrir ofan… Meira

Aron var bestur í fimmtándu umferð

Aron Bjarnason kantmaður Breiðabliks var besti leikmaðurinn í 15. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Aron átti mjög góðan leik og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína þegar Breiðablik vann KR, 4:2, sunnudagskvöldið 21 Meira

Jasmín var best í fjórtándu umferðinni

Jasmín Erla Ingadóttir sóknarmiðjumaður Vals var besti leikmaðurinn í 14. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Jasmín átti mjög góðan leik síðasta miðvikudagskvöld þegar Valskonur sigruðu Tindastól, 4:1, á Sauðárkróki en þar skoraði hún fyrstu tvö mörk Íslandsmeistaranna Meira

Ítalski knattspyrnumaðurinn Riccardo Calafiori er genginn til liðs við…

Ítalski knattspyrnumaðurinn Riccardo Calafiori er genginn til liðs við Arsenal. Félagið greindi frá því í gær en hann er varnarmaður sem kemur frá Bologna fyrir 42 milljónir punda. Calafiori var einn af betri leikmönnum Ítalíu á Evrópumótinu í Þýskalandi fyrr í sumar Meira

París Guðlaug Edda Hannesdóttir á bökkum Signu þar sem vonast er til að sundkeppni þríþrautarinnar fari fram á morgun.

Ég er stolt af að hafa komist á þennan stað

Edda keppir fyrst Íslendinga í þríþraut á Ólympíuleikunum í fyrramálið Meira

Mánudagur, 29. júlí 2024

Úlfarsárdalur Fred Saraiva fagnar öðru marka sinna fyrir Fram gegn Val.

Markastífla Víkinga losnaði

Skoruðu fimm gegn HK • Framarar léku Valsara grátt • FH og Stjarnan unnu Meira

Haukur Andri Haraldsson, hinn 19 ára gamli knattspyrnumaður sem er í röðum…

Haukur Andri Haraldsson , hinn 19 ára gamli knattspyrnumaður sem er í röðum Lille í Frakklandi, er kominn aftur til uppeldisfélagsins ÍA í láni frá franska félaginu. Hann hefur jafnframt framlengt samning sinn við Lille til ársins 2027 Meira

Undanúrslit Snæfríður Sól Jórunnardóttir fór í undanúrslit á Ólympíuleikum í fyrsta skipti er hún endaði í 15. sæti í 200 metra skriðsundi í París.

Besti árangur Snæfríðar

Snæfríður í undanúrslitum á Ólympíuleikunum í fyrsta skipti • Sátt með 15. sætið • Anton ekki í undanúrslit í 100 metrum en á sterkari greinina eftir Meira

Laugardagur, 27. júlí 2024

París Snæfríður Sól Jórunnardóttir er tilbúin í slaginn á sínum öðrum Ólympíuleikum og stefnir á sæti í undanúrslitum á morgun.

Verður allt öðruvísi en í Tókýó

Snæfríður Sól keppir í 200 metra skriðsundinu í París á morgun Meira

Signa Sveitir Íslands, Ísraels, Ítalíu og Jamaíku sigla í gegnum Parísarborg en ýmist voru ein, tvær, þrjár eða fjórar þjóðir í hverjum báti.

Glæsileg setningarhátíð í París

Setningarhátíð Ólympíuleikanna í París fór fram með nýju sniði í gær. Venja er að keppendur og fylgdarlið þeirra gangi inn á keppnisleikvang en í gær var siglt með þá niður hina sögufrægu Signuá í misstórum bátum Meira

Ólafur Ólafsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur skrifað undir…

Ólafur Ólafsson , landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við Grindvíkinga til tveggja ára. Hann er fyrirliði liðsins og hefur leikið þar allan sinn feril á Íslandi en Grindavík tapaði úrslitaeinvíginu við Val um Íslandsmeistaratitilinn í vor Meira

Kópavogur Fylkiskonan Tinna Brá Magnúsdóttir grípur boltann í gær.

Blikar aðeins fengið á sig fjögur mörk

Breiðablik er aftur komið í toppsæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu eftir heimasigur á nýliðum Fylkis, 1:0, á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Sigurmark Breiðabliks skoraði fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir með skrautlegu skoti frá miðjum markteignum sem fór í gegnum varnarmenn Fylkis og í netið Meira

Föstudagur, 26. júlí 2024

Kópavogur Höskuldur Gunnlaugsson í baráttu við þrjá leikmenn Drita.

Erfitt verkefni bíður Blikanna

Slæmur fyrri hálfleikur fór illa með möguleika Breiðabliks gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta þegar liðin léku fyrri leik sinn á Kópavogsvelli í gærkvöld. Drita komst þá í 2:0 en Blikar eiga enn þokkalega… Meira

Hlíðarendi Hasar í vítateig St. Mirrren þar sem Jakob Franz Pálsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Patrick Pedersen reyna að ná til boltans.

Tíu Valsarar héldu jafntefli

Fyrir fram áttu Valsmenn fyrir höndum líkast til erfiðasta verkefnið af íslensku liðunum fjórum sem léku í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld. Þeir geta verið þokkalega sáttir við markalaust jafntefli á Hlíðarenda gegn St Meira

Garðabær Emil Atlason sækir að marki Paide en hann skoraði bæði mörkin í sigri Stjörnunnar og er kominn með fjögur Evrópumörk í ár.

Emil er Evrópu-maðurinn

Emil Atlason er maðurinn á bak við velgengni Stjörnumanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í ár. Hann skoraði bæði mörkin í góðum sigri Garðbæinganna á Paide frá Eistlandi á Stjörnuvellinum í gærkvöld, 2:1, og er nú kominn með fjögur mörk fyrir þá í Evrópukeppninni í ár Meira

Víkin Ilir Dabjani í marki Egnatia ver vel frá miðverðinum Oliver Ekroth á upphafsmínútum leiksins í gærkvöld. Besta færi Víkinga í leiknum.

Víkingar þurfa sigur í Albaníu

Víkingar eru í talsverðri brekku eftir ósigur á heimavelli gegn Albaníumeisturum Egnatia í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í gærkvöld, 1:0. Þeir þurfa að snúa þessu við í Albaníu næsta fimmtudag til að komast í þriðju… Meira

Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er kominn í hóp…

Guðlaugur Victor Pálsson , landsliðsmaður í knattspyrnu, er kominn í hóp Íslendinga í enska fótboltanum. Hann samdi í gær við B-deildarfélagið Plymouth Argyle eftir að hafa leikið með Eupen í belgísku A-deildinni á síðasta tímabili Meira

Valskonur náðu efsta sætinu

Valskonur náðu í fyrrakvöld þriggja stiga forskoti á Breiðablik á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta með öruggum sigri á Tindastóli á Sauðárkróki, 4:1. Þór/KA lagði botnlið Keflavíkur, 1:0, suður með sjó með glæsilegu marki Huldu Óskar Jónsdóttur Meira

Fimmtudagur, 25. júlí 2024

Fjórir Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee er á leiðinni á sína fjórðu og síðustu Ólympíuleika í París.

Meiri kröfur og væntingar á síðustu Ólympíuleikunum

Anton keppir fyrstur Íslendinganna í París • Möguleiki á sæti í úrslitum Meira

Ólympíuleikarnir, sú mikla íþróttahátíð, hefjast formlega í París annað…

Ólympíuleikarnir, sú mikla íþróttahátíð, hefjast formlega í París annað kvöld, enda þótt keppni sé þegar hafin í nokkrum greinum. Sveit okkar Íslendinga er ansi fámenn, enda strangar fjöldatakmarkanir í öllum greinum, en þau fimm sem keppa fyrir… Meira

Líkurnar íslensku liðunum í hag

Víkingur og Stjarnan hafa söguna með sér • Erfiðara hjá Val og Blikum? Meira

Noregur Þórir Hergeirsson hefur náð einstökum árangri með Noreg.

Geta allir barist um verðlaun

Þrír Íslendingar mæta til leiks á Ólympíuleikunum í dag • Eyjakonan á sínum fyrstu leikum • Þórir og Noregur vilja gullið • Alfreð og Dagur gætu náð langt Meira

Enski knattspyrnumaðurinn Jadon Sancho er í leikmannahópi Manchester…

Enski knattspyrnumaðurinn Jadon Sancho er í leikmannahópi Manchester United sem er á leið í æfingaferð til Bandaríkjanna en reiknað var með því að hann yrði seldur frá félaginu í sumar Meira