Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, bendir í viðtali við Morgunblaðið í gær á að orkuskortur sé yfirvofandi hér á landi. Þá segir hún að við framleiðum engin verðmæti án orku og að fylgni sé á milli orkunotkunar þjóða og hagsældar þeirra Meira
Óhugnanlegt er að lesa lýsingu Sigurðar Más Jónssonar blaðamanns í pistli á mbl.is um alþjóðavæðingu glæpaheimsins og sérstaklega vaxandi hörku í glæpastarfsemi á Norðurlöndum. Hann nefnir fréttir af því að glæpamenn í Danmörku séu í auknum mæli teknir að fá sænsk ungmenni til að fremja ódæði fyrir sig, jafnvel morð. Þannig hafi tveir sænskir unglingspiltar verið handteknir í Danmörku grunaðir um skotárás. Meira
Obama greip þá undir handlegginn á forsetanum og leiddi hann út og var svo sannarlega ekki að leyna því hvað væri að gerast. Varaforseti Bidens sló ekki af sér að vitna í sífellu um það í hvílíku rosastuði Biden væri og nefndi sem dæmi að enginn embættismaður í Hvíta húsinu ætti roð við honum, hvert svo sem málið væri sem var til umræðu. Meira
Viðskiptablaðið fjallar í leiðara sínum í vikunni um viðbrögð verkalýðsforingja við verðbólgutölum og telur þau öll fyrirsjáanleg og á misskilningi byggð. Þegar verðbólgumæling hafi sýnt hækkun í síðasta mánuði hafi þeir hver af öðrum risið upp á afturlappirnar og kvartað. Meira
Margt má margt segja um Ólympíuleikana í París. Vafalalaust er að þarlendir höfðu ríkulegan metnað til að gera leikana sem glæsilegasta og kosta verulegu fé til þess að svo mætti verða. Það var einkum tvennt sem fór úr skorðum, þrátt fyrir vilja til að gera allt sem glæsilegast og verða París og frönsku þjóðinni til sóma. Meira