Fréttir Mánudagur, 30. september 2024

Skyndifundur um Ölfusárbrú

Grunnforsenda að Ölfusárbrú verði fjármögnuð með veggjöldum • Formenn fjárlaga- og umhverfis- og samgöngunefndar samstiga • Vilja stöðuna upplýsta Meira

Drögin kynnt Ásmundur Einar Daðason, ráðherra málaflokksins.

Tíu mánaða viðbragðstími

Nú þegar tæpir tíu mánuðir eru liðnir frá því að niðurstöður PISA-könnunarinnar árið 2022 vörpuðu enn meira ljósi á alvarlega stöðu íslenska menntakerfisins ætla stjórnvöld loks að láta verða af því að kynna viðbrögð sín Meira

Jarðeldar Hraunskildir myndast í einu löngu gosi að mati vísindamanna.

Líkur á dyngjugosi þykja fara vaxandi

Gos sem gæti varað í áratugi • Ekki líklegasta sviðsmyndin Meira

Þrettán látið lífið í umferðarslysum

Banaslys varð rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags á Sæbraut við Vogabyggð. Ökumaður ók á gangandi vegfaranda sem var fluttur á slysadeild en skömmu síðar úrskurðaður látinn. Viðbragðsaðilar voru lengi á vettvangi og loka þurfti umferð á svæðinu á meðan Meira

Hvalamerkingar Sverrir D. Halldórsson leiðangursstjóri Hafró, Tryggvi Sveinsson skipstjóri og skytta og Eric dos Santos tóku þátt í verkefninu.

Náðu að koma gervitunglamerki í eina hrefnu í ár

Hrefnur sagðar erfiðar viðureignar • Óútreiknanlegar, ekki stefnuvissar Meira

Skyr Eftirsótt vara og framleiðsla ársins hjá MS er um 6.000 tonn. Innanlands- og útflutningsmarkaður eru því sem næst jafn stórir póstar.

Stærra mjólkurbú og enn meira skyr

MS í framkvæmdir á Selfossi • Umsvif og aðkallandi mál Meira

Mannréttindi Þórdís ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.

Þórdís vill Ísland í mannréttindaráðið

Ísland mun gefa kost á sér til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á næsta ári. Ísland hefur einu sinni áður verið kjörið í mannréttindaráðið og gustaði þó nokkuð um setu landsins þar meðan á henni stóð Meira

Mosfellsdalur Vegurinn verður áfram einbreiður á þessum kafla en hringtorgin eiga að draga úr umferðarhraða.

Ráðist í vegabætur í Mosfellsdalnum

Tvö hringtorg sett á veginn • Íbúar ósáttir við hraðakstur Meira

Ávarp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður talaði á þinginu.

Sundruð ríkisstjórn kosti þjóðina of mikið

Viðreisn vill kosningar sem fyrst • Næsta stjórn geti komið sér að verki Meira

Loftslag Uppfærða aðgerðaáætlunin var kynnt í sumar.

Loftslagsaðgerð ókunn ráðherra

Ein þeirra 150 loftslagsaðgerða sem stjórnvöld hafa kynnt er að draga úr ræktun á lífrænum jarðvegi. Í samráðsgátt má sjá uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og þar kemur fram að markmið aðgerðarinnar sé „að fækka hekturum sem ræktaðir eru … Meira

Sigurður Björnsson

Sigurður Björnsson, krabbameinslæknir og fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands, lést á Landspítalanum í Fossvogi í gær, 29. september, 82 ára að aldri. Sigurður fæddist 5. júní 1942 í Princeton í New Jersey í Bandaríkjunum Meira

Landslag Við Skálafellsjökul sem gefur hratt eftir og breytist.

Almenningur myndi sýn til jökla

Á fimmtudag verður í Skaftafelli í Öræfum og á Hala í Suðursveit haldin opnun á verkefninu Jöklasýn sem er samstarf Jöklarannsóknafélags Íslands og ljósmyndarans James Balogs. Valdir hafa verið staðir og sjónarhorn til að skrásetja breytingar á… Meira

Fuglafræðingur Jóhann Óli með kíkinn á lofti á Stokkseyri þar sem hann hefur frábært tækifæri til fuglaskoðunar.

Fuglarnir standa hjörtum okkar nærri

„Fálki er þjóðarfugl Íslendinga svo víða kemur hann við í sögum fyrri tíðar og var konungsgersemi. Heiðlóan er sennilega vinsælasti fuglinn á meðal Íslendinga og hrafninn sá gáfaðasti, enda sýna vísindarannsóknir fram á snilli og gáfur krumma… Meira

Útsýnisstaður Ferðakonur frá Sviss á dögunum á útsýnispallinum sem komið hefur verið upp á vesturbakka Þjórsár við fossinn mikla.

Umhverfisbætur og fólkinu fjölgar

Urriðafoss í Þjórsá í Flóanum kemur sterkur inn sem viðkomustaður ferðafólks • Bílastæði, útsýnispallur og göngustígar • Gljúfur og háir hamraveggir • Virkjun er fyrirhuguð á svæðinu Meira

Samvera Spilastund í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Kátir krakkar og Halla Heimisdóttir er þriðja frá vinstri.

Borðspilin komi í stað snjallsímanna

„Að ungmenni leggi símann oftar frá sér er mikilvægt. Samvera skiptir máli og þá er tilvalið að grípa í spil,“ segir Halla Svanhvít Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsufræðingur við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ (FMos) Meira

Íþróttamaður Sigfús Sigurðsson tekur sveifluna og kastar kúlunni.

Sýna verðlaunagripi frá Sigfúsi

Á morgun verður í Bókasafni Árborgar á Selfossi opnuð sýning á ýmsum verðlaunagripum úr eigu Sigfúsar Sigurðssonar (1922-1999), frjálsíþróttamanns og ólympíufara. Hann var á sínum tíma einn af fræknustu íþróttamönnum landsins og var fulltrúi Íslands á Ólympíuleikunum í London 1948 Meira

Heiður Össur Geirsson hefur stjórnað Skólahljómsveit Kópavogs í 31 ár.

Össur heiðurslistamaður Kópavogs

Össur Geirs­son, skóla­stjóri Skóla­hljóm­sveit­ar Kópa­vogs, hefur verið val­inn heiðurslistamaður bæj­ar­fé­lags­ins af lista- og menn­ing­ar­ráði Kópa­vogs. Elísa­bet Berg­lind Sveins­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Kópa­vogs og formaður… Meira

Minnast Bryndísar Klöru Góðgerðarráð Verzlunarskóla Íslands, efri röð f.v. Tinna Karen Sigurðardóttir, Aníta Líf Ólafsdóttir, Sunna Hauksdóttir, Kristjana Mist Logadóttir, Ingunn Böðvarsdóttir og Inga Lilja Ómarsdóttir. Neðri röð f.v. Eva Björk Angarita, Kristín Salka Auðunsdóttir, Birta María Aðalsteinsdóttir, Helga Hrund Ólafsdóttir og Salka Elín Sæþórsdóttir.

„Þurfum að hugsa hvert um annað“

„Við sem samfélag þurfum að staldra við og hugsa hvert um annað. Ég vil hvetja alla, sérstaklega ungu kynslóðina, til að koma og taka þátt í þessari mikilvægu stund til þess að gleðjast og heiðra minningu Bryndísar með okkur,“ segir… Meira

Fimm ættliðir Fremst er ættmóðirin, Lovísa Ágústsdóttir. Efri röð: Elísa Enea Sigrúnardóttir, Sigrún Vala Valgeirsdóttir og Sigurlaug Sunna Gunnarsdóttir Hjaltested (dóttir Elísu) og óskírð Sigurlaugar og Bjartsdóttir.

„Nú þarf að taka fram skotthúfuna“

Langamma rúmlega sextug • Sterk kvenorka í ættinni Meira

Leiðtogi Hisbollah felldur í loftárás

Hassan Nasrallah, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Hisbollah, var felldur í loftárás Ísraels á föstudaginn. Dauði Nasrallahs er gríðarlegt áfall, ekki aðeins fyrir samtökin sem hann leiddi í 30 ár heldur einnig fyrir helsta bakhjarl hans, klerkastjórnina í Íran Meira

Austurríki Herbert Kickl veifar til stuðningsmanna sinna eftir fyrstu útgönguspár. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn sigrar í kosningum.

Sögulegar þingkosningar í Austurríki

Frelsisflokkurinn sigrar í kosningum í fyrsta sinn • Geta þó ólíklega myndað ríkisstjórn • Sósíal­demókratar og Þjóðarflokkurinn neita samstarfi við Frelsisflokkinn • Stefnir allt í þriggja flokka stjórn Meira

Helena Bylurinn sló út rafmagn hjá liðlega 2,7 milljónum heimila.

Neyð eftir að Helena gekk yfir

Björgunaraðgerðir eru í fullum gangi í suðausturhluta Bandaríkjanna eftir að fellibylurinn Helena reið yfir. Flórída, Georgía, Norður-Karólína, Suður-Karólína og Tennessee urðu verst fyrir barðinu á yfirreið bylsins Meira

Rjúpnahlíð Hugmyndir eru uppi um að skipuleggja Rjúpnahlíð í Garðabæ fyrir atvinnustarfsemi. Vífilsstaðavatn er til hægri handar á myndinni.

Garðabær vill víkka út vaxtarmörk sín

Við ætlum að láta aftur reyna á útvíkkun vaxtarmarka í landi Garðabæjar,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ í samtali við Morgunblaðið. Vilji bæjaryfirvalda stendur til þess að skipuleggja byggingarland í Rjúpnahlíð, norðan Vífilsstaðavatns, en það land er nú óbyggt Meira

Draumahögg Ríkharður sækir golfboltann í holuna á Víkurvelli.

Tvívegis hola í höggi á sömu brautinni

Ríkharður Hrafnkelsson úr Stykkishólmi fór á dögunum holu í höggi á heimavelli sínum Víkurvelli í Hólminum. Það eitt og sér væri kannski ekki umfjöllunarefni en það sem er öllu merkilegra er að Ríkharður hefur afrekað að fara fimm sinnum holu í höggi Meira