Í dag getur heldur betur dregið til tíðinda í Bestu deild karla í fótbolta þegar fjórir af sex leikjum 26. og næstsíðustu umferðar deildarinnar fer fram. Úrslitin gætu nánast ráðist í einvígi Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn Meira
Þróttarinn Caroline Murray var best af eldri leikmönnum Bestu deildar kvenna á keppnistímabilinu 2024, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Þar koma til greina leikmenn sem eru eldri en þrítugir, þ.e Meira
Grótta og FH skildu jöfn, 24:24, í æsispennandi leik í 7. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Grótta fór upp í 4. sæti þar sem liðið er með níu stig og FH er í 2 Meira
Blandað ungmennalið Íslands í hópfimleikum gerði sér lítið fyrir og varð Evrópumeistari í Bakú í Aserbaídsjan í gær. Íslenska liðið endaði með 51.600 stig, 200 stigum meira en Svíþjóð sem hafnaði í öðru sæti Meira
Njarðvík hafði betur gegn Keflavík, 89:88, í mögnuðum Suðurnesjaslag í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í íþróttahúsi Keflavíkur í gærkvöldi. Njarðvík hefur þá unnið tvo af fyrstu leikjum sínum í deildinni á tímabilinu en Keflavík aðeins einn Meira
Afturelding fór upp í toppsæti úrvalsdeildar karla í handbolta með sannfærandi sigri á ÍBV, 38:27, á heimavelli sínum í sjöundu umferðinni í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Afturelding er nú með ellefu stig, einu stigi meira en FH í öðru sæti Meira
Devon Thomas fór vægast sagt á kostum fyrir Grindavík þegar liðið fór illa með Hött í toppslag 3. umferðar úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gær. Leiknum lauk með stórsigri Grindavíkur, 113:84, en Thomas skoraði 38 stig, tók fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar Meira
Arnór samdi við Íslendingaliðið Fredericia • Mikið stökk úr íslensku yfir í dönsku deildina • Ráðfærði sig við Elliða Snæ • Stefnir á stórmót með A-landsliðinu Meira
Þrír Íslendingar komast á lista yfir 20 efnilegustu leikmenn Norðurlandanna í knattspyrnu í karlaflokki. Breski miðilinn DailyMail tekur saman listann en landsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir á listanum Meira
Åge Hareide hefur stýrt íslenska karlalandsliðinu frá því í apríl á síðasta ári. Norðmaðurinn, sem er orðinn 71 árs gamall, tók við liðinu á erfiðum tíma en undir hans stjórn hefur landsliðið leikið 18 leiki Meira
„Fyrstu mánuðirnir hafa eiginlega verið frábærir. Mér líður mjög vel hjá liðinu,“ sagði Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið. Hún gekk til liðs við Blomberg-Lippe frá Sachsen Zwickau í sumar Meira
Freyr Alexandersson er í krefjandi starfi hjá Kortrijk í efstu deild Belgíu Meira
Enska knattspyrnufélagið Manchester City er farið að huga að því hvernig lífið gæti litið út eftir að Pep Guardiola knattspyrnustjóri karlaliðsins lætur af störfum. Samningur Guardiola rennur út næsta sumar og hefur Spánverjinn ekkert viljað gefa upp um hvort hann hyggist halda áfram eður ei Meira
Valur náði sterku jafntefli gegn Porto • Tveimur mörkum yfir undir lokin • Þorsteinn Leó náði sér ekki á strik • FH átti ekki möguleika gegn Guðjóni og Elliða Meira
Nýliðar Tindastóls unnu sinn annan leik á tímabilinu þegar liðið heimsótti Njarðvík í 3. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Njarðvík í gær. Leiknum lauk með dramatískum sigri Tindastóls, 77:76, en Njarðvík var með níu stiga forskot þegar fimm mínútur voru til leiksloka Meira
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Það er BBC sem greinir frá þessu en Tuchel, sem er 51 árs gamall, stýrði síðast Bayern München í heimalandinu. Þjóðverjinn verður aðeins þriðji erlendi þjálfarinn … Meira
Bergdís Sveinsdóttir, miðjumaður úr Víkingi, var besti ungi leikmaðurinn í Bestu deild kvenna keppnistímabilið 2024, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Bergdís fékk flest M af leikmönnum undir tvítugu, fæddum 2005 og síðar, samtals 11 M, en hún lék 21 af 23 leikjum Víkingsliðsins í deildinni Meira
„Þetta leggst ótrúlega vel í mig. Þetta er bara annar Evrópuleikurinn minn. Þetta er búin að vera löng vegferð hjá okkur í Gummersbach en á sama tíma mjög stutt,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, línumaður gamla þýska handboltastórveldisins, í samtali við Morgunblaðið Meira
Árið er 2024. Í gær þurftum við að bíða með öndina í hálsinum til klukkan tvö til að fá fullvissu um hvort hægt væri að spila gegn Tyrklandi á Laugardalsvellinum. Ekki í neinum vetrarkulda eða snjó, eða vegna þess að haustlægð væri á leiðinni yfir landið Meira
„Það er svekkjandi að tapa þessum leik og sérstaklega þegar við komumst yfir og jöfnum í 2:2,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði Íslands við Morgunblaðið eftir leikinn. „Við áttum líka að fá víti og rautt spjald á þá í stöðunni 2:1 Meira
Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu frá og með næsta tímabili. Arnór, sem er 38 ára gamall, er í leikmannahópi Blika í ár og leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Meira
Eftir leikina tvo í gærkvöld er komin skýrari mynd á stöðuna í 4. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar en í hinum leiknum mættust Wales og Svartfjallaland í Cardiff og Wales vann 1:0 með marki frá Harry Wilson Meira
Frammistaða Íslands í fyrri hálfleik var mjög góð. Tyrkir voru ógnandi í sóknaraðgerðum sínum eftir markið en íslenska liðið varðist vel og Hákon Rafn Valdimarsson var öruggur í markinu þar fyrir aftan Meira
Valskonur unnu sinn 32. leik í röð í öllum keppnum er þær sigruðu Hauka með sannfærandi hætti, 28:22, í úrvalsdeild kvenna í handbolta á heimavelli sínum á Hlíðarenda á laugardag. Þar sem Fram missteig sig náði Valur þriggja stiga forskoti á toppi… Meira
Njarðvíkingar léku sinn fyrsta heimaleik í glænýju húsi í Innri-Njarðvík á laugardagskvöld, Stapahöllinni. Njarðvík hélt upp á áfangann með því að sigra Álftanes, 89:80, í annarri umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta Meira
Tumi Steinn Rúnarsson átti góðan leik með Alpla Hard er liðið hafði betur gegn Barnbach, 30:26, í efstu deild Austurríkis í handbolta á föstudag. Tumi Steinn skoraði fimm mörk fyrir Alpla Hard en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið Meira
Ísland mætir Tyrklandi í mikilvægum leik í Þjóðadeildinni • Tyrkland aldrei unnið á Íslandi í sjö tilraunum • Stefán Teitur og Jón Dagur taka út leikbann Meira