Fréttir Fimmtudagur, 30. janúar 2025

Koma í veg fyrir frekari tafir

Ráðherra boðar frumvarp um Hvammsvirkjun á fyrsta þingdegi • Vonandi hægt að afgreiða á fáum sólarhringum • Verður lagt fyrir ríkisstjórn í næstu viku Meira

Vopnaburður Lögreglan hefur stundum þurft að vígbúast vegna vopnaburðar fólks, bæði vegna barefla, hnífaburðar, höggvopna og skotvopna.

Fagna hækkun sektarfjárhæðar

„Ég fagna þessu mjög. Ég og fleiri lögreglumenn höfum verið að vekja athygli á þessu víða, því sektarfjárhæð fyrir vopnaburð hefur verið allt of lág og þetta er því mikið fagnaðarefni,“ segir Fjölnir Sæmundsson, formaður landssambands lögreglumanna Meira

Alþingi Þingflokksherbergi sjálfstæðismanna, sem þeir hafa haldið í 84 ár, er málað bláum lit og þar hanga málverk af formönnum og þingforsetum.

Togast á um vistarverur í Alþingishúsi

Samfylkingin krefst þingflokksherbergis Sjálfstæðisflokks Meira

Lögmæti Formaður Kennarasambands Íslands í héraðsdómi í gær.

Skera úr um lögmæti á morgun

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðar um lögmæti verkfallsaðgerða kennara á morgun, föstudag. Hópur foreldra leikskólabarna höfðaði mál gegn Kennarasambandi Íslands vegna verkfallanna. Aðalmeðferð fór fram í gær Meira

Leyfi Landeldisstöð Aurora verður staðsett austan við álverið á Grundartanga. Framkvæmdaaðili segir starfsemina verða utan þynningarsvæðis.

Óvíst með starfsleyfi fyrir landeldi

Matvælafyrirtæki eiga ekki að vera staðsett nálægt atvinnurekstri sem getur haft mengandi áhrif l  Forsvarsmenn Aurora telja að um misskilning sé að ræða því starfsemin verði utan þynningarsvæðis  Meira

Maríuborg Tuttugu starfsmenn leikskólans hafa hætt þar störfum vegna ástandsins og sjö eru í veikindaleyfi.

Hafði unnið á Maríuborg frá ágúst 2013

„Við, fyrrverandi starfsfólk leikskólans Maríuborgar, vísum ásökunum Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur formanns skóla og frístundaráðs Reykjavíkur alfarið á bug þar sem þær eiga sér enga stoð. Leikskólastjórinn hefur starfað á Maríuborg síðan í ágúst 2013 Meira

Jóhann Páll Jóhannsson

Orkumál garðyrkju rædd í ríkisstjórn

„Ég hef þungar áhyggjur af stöðu garðyrkjubænda. Þeir eru nú að súpa seyðið af ójafnvægi sem ríkir í raforkukerfinu sem stafar bæði af því að orkuöflun og uppbygging raforkukerfisins hefur ekki gengið nógu hratt og ekki haldið í við vaxandi… Meira

Fossvogsbrú Mikið var um dýrðir þegar framkvæmdir hófust við landfyllingar fyrir Fossvogsbrú, þar sem ráðherra tók fyrstu skóflustunguna.

Engin fjárheimild fyrir Fossvogsbrú

Ekki minnst á Fossvogsbrú í gildandi samgönguáætlun • Á að kosta jafn mikið og lotan frá Hamraborg að Hlemmi sem brúin er hluti af • Landfylling að Fossvogsbrú er þó sögð vera innan fjárheimilda Meira

Rusl Sorpa þarf að gera breytingar á rekstrarforminu, að kröfu ESA.

Hlutafélag um flokkun og urðun

Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að tryggja að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag sem sé tekjuskattsskylt. Í tilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, segir að með ákvörðun ESA sé skuldbinding Íslands staðfest og sé hún því lagalega bindandi Meira

Arnarfjörður Dynjandi er mestur og frægastur fossa á Vestfjörðum.

Þrjú tilboð í veg um Vestfirði

Þrjú tilboð bárust í verkið Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, 3. áfangi, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni sl. þriðjudag. Borgarverk ehf. Borgarnesi bauð lægst eða krónur 1.482.160.020. Var það 84% af áætluðum verktakakostnaði, sem var krónur 1.761.824.081 Meira

Grindavík Skrifstofur bæjarins eru nú í Reykjavík og Grindavík.

Mikil viðvera á skrifstofunni

Starfsemi á bæjarskrifstofunni í Grindavík • Enn opið í Tollhúsinu Meira

Skokk Hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna; að fá súrefni í lungun og blóðið á hreyfingu. Allt lifnar við.

Lífsstílssjúkdómar vaxandi vandi

Skaðandi næring og lítil hreyfing • Skapar um 80% kostnaðar í heilbrigðiskerfi • Hjarta og æðar, sykursýki, offita og geðrænir kvillar • Sykurkeðjur í fæðunni • Glíma við afleiðingar Meira

Gestaboð Leiðtogar fjögurra Norðurlandaþjóða brutu brauðið á sunnudag.

Tíðrætt við norrænu kollegana

Forsætisráðherra vannst ekki tími til að fara í kvöldmatarboð hjá Mette • Frétti af því samdægurs • Helfarardagsins eftirleiðis minnst hér á landi Meira

Þétt Bílastæðin við Suðurlandsbraut eru oft þétt setin og á álagstímum myndast þar eins konar neyðarástand.

Mun þrengja mjög að fyrirtækjum

Nýtt aðalskipulag fyrir fyrstu lotu borgarlínu liggur fyrir • Mun þrengja mjög að umferð og aðgengi akandi að mikilvægu verslunarsvæði • Bílastæðum mun fækka gríðarlega frá því sem nú er Meira

Samið Jens Valdimarsson, Valdimar Gunnarsson og Gerður Sveinsdóttir.

Mun setja svip á bæinn

Lóð úthlutað til hótelbyggingar við höfnina á Bíldudal • Þrjú gömul hús endurgerð • Lítil landfylling og trébryggja • Spennandi verkefni, segir bæjarstjóri Meira

Dagskráin sett He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, ávarpar gesti Háskólabíós á nýársfagnaði sl. föstudag.

Ári snáksins fagnað í Reykjavík

Fjölmenni hélt upp á kínverska nýárið í Háskólabíói • Inga Sæland ávarpaði samkomuna l  Li Jie söng á íslensku eins og Peng Liyuan, kona Xi Jinpings Kínaforesta, gerði á Íslandi 1980 Meira

Bragðið sem „landslýður þekkir“

90 ár eru liðin frá því áfengisbannið var afnumið og Brennivín kom á markað • Framleitt af yfirvöldum í áratugi • Uppskriftin er hernaðarleyndarmál • Lengi vel mest selda varan í ríkinu Meira

Austurbrún Íbúðarhúsin þrjú efst í Laugarásnum gnæfa yfir borgina.

Útsýnisíbúðin fékk grænt ljós

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur fallist á beiðni um að breyta samkomusal á 13. hæð í Austurbrún 2 í leiguíbúð. Snýr hann þar með við fyrri ákvörðun sinni, þar sem beiðninni var hafnað. Austurbrún 6 stendur efst í Laugarásnum og þetta verður því ein glæsilegasta útsýnisíbúð borgarinnar Meira

Veisla Fjölmargir litu inn í tilefni af því að 100 ár voru í gær liðin frá því að fyrsta Rauðakrossdeildin hér á landi var stofnuð; Akureyrardeild.

Framlag sjálfboðaliða er ómetanlegt

Fjölmennt var í húsakynnum Rauða krossins við Eyjafjörð þegar því var fagnað að 100 ár voru liðin frá stofnfundi Akureyrardeildar Rauða krossins. Deildin var fyrsta Rauðakrossdeildin sem stofnuð var hér á landi og hefur frá upphafi verið ein sú öflugasta Meira

Frásögn Hér segir af Halaveðrinu í Öldinni okkar, þeim vinsælu bókum.

Hundrað ár frá Halaveðrinu

Ýmislegt verður gert á næstunni í tilefni af því að dagana 7.-9. febrúar er liðin öld frá Halaveðrinu svonefnda og þeim skaða sem því fylgdi. Í ofsa þeim fórst með 35 mönnum togarinn Field Marshal Robertson sem var gerður út frá Hafnarfirði af útgerðarfélagi Hellyersbræðra í Hull í Bretlandi Meira

Predikanir skila SÞ ekki árangri

Fyrrverandi mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýkur lofsorði á störf Jakobs Þ. Möller sem féll frá fyrr í mánuðinum • Kynntust fyrir meira en hálfri öld • SÞ þarf að nýta styrkleikana Meira

Kokkur Sindri Guðbrandur Sigurðsson lenti í 8. sæti í Bocuse d’Or.

Sindri í 8. sæti á Bocuse d'Or

Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði 8. sæti í Bocuse d'Or, heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu, sem haldin var í Lyon í Frakklandi í byrjun vikunnar. Alls kepptu 24 þjóðir til úrslita eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt í undankeppnum í sínum heimsálfum Meira

Laugavegur 71 Áberandi hús við eina helstu götu borgarinnar. Mikil uppbygging hefur verið á næstu lóðum austan hússins. Ein er þó óbyggð.

Nýtt hlutverk Laugavegshúss

Við Laugaveg 71 stendur reisulegt hús með átta íbúðum sem leigðar hafa verið til ferðamanna í skammtímaleigu. Nú hyggst eigandinn, Svala apartments ehf., breyta þeim í almennar íbúðir til langtímaleigu og hefur sent fyrirspurn þess efnis til Reykjavíkurborgar Meira

Miðborgin Það var algeng sjón í fyrrasumar að sjá erlenda ferðamenn innpakkaða í plast. Sem betur fer fengu ferðamennirnir einn og einn sólardag.

Sumarið í fyrra var með þeim blautustu

Sumarið 2024 fær ekki háa einkunn hjá Veðurstofu Íslands í nýbirtu tíðarfarsyfirliti ársins. Ekki er úr vegi að rifja upp þetta leiðindasumar nú þegar landsmenn eru farnir að horfa vonaraugum til sumarsins 2025 Meira

Hornafjörður Á Höfn eru öflug útgerðarfyrirtæki. Því er mikilvægt að innsiglingin að höfninni sé ætíð greið og ekki hætta á að skip og bátar taki niðri.

Enn skal glímt við Grynnslin

Erlent dýpkunarskip dælir upp sandi við Hornafjarðarós • Verkefnið kostar tæpar 300 milljónir króna • Rannsóknir sýna að Grynnslin fyllast hratt í óveðrum • Sandur veldur vandræðum Meira

Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts.

„Skemmtilegt að vera í viðskiptum þegar maður er sjálfs sín herra“

Félag kvenna í atvinnulífinu hélt glæsilega viðurkenningarhátíð á Hótel Reykjavík Grand í gær þar sem þrjár konur voru heiðraðar. Fjölmennt var á hátíðinni og mikil samstaða í hópnum. Meira

Rafmagnsbílar Lögreglan ætlar sér að nota Audi Q6-rafmagnsbíla í neyðarakstur. Myndin sýnir slíka bifreið.

Lögreglan treystir á rafmagnið

Allt að 60 Audi Q6-rafmagnsbílar keyptir • Með þessu er Ísland að stilla sér í fremstu röð við notkun á rafmagnsbílum sem neyðaraksturstæki • Áætlaður heildarkostnaður við útboðið var um 626 milljónir Meira

Ítök Rússa í Mið-Austurlöndum í hættu?

Rússar sendu sendinefnd til Sýrlands til þess að ræða við hina nýju valdhafa • Herstöðvar þeirra í Sýrlandi sagðar í hættu • Fáir kostir í boði fyrir Rússa missi þeir aðganginn að Tartus Meira

Kumbh Mela Lögreglumenn bera hér eitt fórnarlambanna á brott.

Harmleikur á trúarhátíðinni

Sorg skyggði á hátíðahöld hindúa í borginni Prayagraj í gærmorgun, en að minnsta kosti 30 manns létu þá lífið þegar þeir tróðust undir mannþröng, sem vildi komast að hinum helgu fljótum, Ganges og Yamuna, um morguninn Meira

Herstöð Bandaríska Pituffik-geimherstöðin, sem áður nefndist Thule, er á norðvesturströnd Grænlands. Spenna á heimskautasvæðinu fer vaxandi.

Grænlendingar vilja ekki Bandaríkin

Skoðanakönnun sem danska blaðið Berlingske birti í gær sýnir að mikill meirihluti Grænlendinga, eða rúmlega 85%, er andvígur því að Grænland gangi úr ríkjasambandinu við Danmörku og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum Meira

Himnesk léttbökuð lúða borin fram með fersku hnúðkáls- og lárperusalati og freyðandi grænni karrísósu sem kemur úr smiðju Wiktors.

Býður upp á bakaða lúðu með freyðandi karrísósu

Wiktor Pálsson landsliðskokkur nýtur þess að meðhöndla og matreiða fisk. Þó að hann hafi ekki viljað borða fisk sem barn þá er fiskur eitt af því skemmtilegasta sem hann matreiðir í dag. Í dag finnst honum að allir ættu að borða fisk að minnsta kosti þrisvar í viku. Meira

Í Dalshrauni Örn Ragnarsson, Þorgeir Níelsson, Anna Lilja Jónsdóttir, Brynjólfur Garðarsson og Andrés Hafberg fyrr í vikunni.

Snúið og skorið í 13 ár

Félag trérennismiða á Íslandi hefur dafnað síðan Örn Ragnarsson tók við formennskunni 2021 og eru nú 294 manns í félaginu. Þar á meðal er 11 manna hópur, sem kallar sig Snúið og skorið og leigir saman aðstöðu í Dalshrauni í Hafnarfirði Meira