Fastir þættir Mánudagur, 3. febrúar 2025

Bútabardagi N-Enginn

Norður ♠ G8532 ♥ G4 ♦ 105 ♣ 10875 Vestur ♠ ÁD9 ♥ 86 ♦ ÁK64 ♣ DG32 Austur ♠ K74 ♥ D92 ♦ DG983 ♣ 64 Suður ♠ 106 ♥ ÁK10753 ♦ 72 ♣ ÁK9 Suður spilar 3♥ dobluð Meira

Hvítur á leik

Skák

1. c4 e6 2. Rf3 d5 3. d4 Rf6 4. g3 Be7 5. Bg2 0-0 6. 0-0 dxc4 7. Dc2 c6 8. Dxc4 b5 9. Dc2 Bb7 10. Rc3 Rbd7 11. Bg5 h6 12. Bxf6 Rxf6 13. Re4 Rxe4 14. Dxe4 Hb8 15. De3 Db6 16. Re5 Hfd8 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur Meira

Fremri-Gufudalur Jóhanna ólst upp í Fremri-Gufudal og býr þar með fjölskyldu sinni.

Opin, lífsglöð og lausnamiðuð

Jóhanna Ösp Einarsdóttir fæddist 3. febrúar 1985 á Landspítalanum í Reykjavík en er uppalin í Fremri-Gufudal í Reykhólahreppi. „Mér finnst mikil forréttindi að fá að alast upp í sveit, læra á náttúruna, kynnast sínum eigin takmörkum og umgangast náttúru og dýr af virðingu Meira

Af lýðræði, hana og Þingeyingum

Friðrik Steingrímsson frá Mývatnssveit heyrði af því að fólki hefði verið sagt upp sem rannsakaði sakamál gegn Trump: Lýðræðið þar sagt er synd og sóa lífi flestra, óðum tekur á sig mynd einræðið þar vestra Meira

Fleiri greinar úr þessum flokki í vikunni

Laugardagur, 1. febrúar 2025

Urðarkirkja í Svarfaðardal

Messur

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn og undirleik Krisztinu K. Szklenár. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar Meira

Alþingi Drífa var í átta ár varaþingmaður og átta ár kjörinn þingmaður.

Ætlaði aldrei að taka þátt í pólitík

Drífa Hjartardóttir fæddist 1. febrúar 1950 í Reykjavík og æskuslóðirnar eru Fálkagata, Grænuhlíð og svo Miðbraut 2 á Seltjarnarnesi. „Ég átti mjög góða æsku þar sem ég bjó við mikið frjálsræði Meira

Af hamri, þurrki og handbolta

Það var kátt í höllinni að loknum leik Króata og Frakka í Zagreb, og tilfinningar heitar hjá heimamönnum. Gamla goðsögnin Domagoj Duvnjak þakkaði þjálfara sínum með risaknúsi. Hannes Sigurðsson hreifst með: Króatar Frökkunum tóku tak, í tryllingi keyrðu þá aftur á bak Meira

Föstudagur, 31. janúar 2025

Jenný Maggý Rúriksdóttir

40 ára Jenný er Hafnfirðingur, ólst upp í Suðurbænum og hefur búið þar allt sitt líf fyrir utan nokkurt skeið í Frakklandi. Hún er með meistaragráðu í markaðs- og alþjóðaviðskiptum frá HÍ. Jenný starfar sem markaðsstjóri hjá Íslandshestum, sem er… Meira

Viðburðaríkt og fjölbreytilegt líf

Pálmi Ragnar Pálmason er fæddur 31. janúar 1940 í Reykjavík. „Ég man fyrst eftir mér í Menntaskólanum í Reykjavík, en faðir minn var rektor við skólann og íbúð rektors þá í skólanum. Á barnaskólaárunum bjuggum við í Garðastræti Meira

Af klaka, þorra og hamborgurum

Ingólfur Ómar Ármannsson sendir þættinum hrollkalda vísu, enda óhætt að segja að nú sé vetrarlegt um að litast: Veðrahrak og hríðarfár hryðjum blakar þöndum. Stirðna vakir, vötn og ár vefjast klakaböndum Meira

Fimmtudagur, 30. janúar 2025

Í Notodden Edda ásamt fjölskyldu Brynhildar við stafkirkjuna Heddal.

Náði að skyggnast inn í eldgamla tíma

Edda Margrét Jensdóttir fæddist 30. janúar 1955 á Landspítalanum í Reykjavík og ólst upp á Hagamel. Hún dvaldi á sumrin á Hvoli í Borgarfirði eystra frá fimm mánaða aldri til níu ára aldurs. „Þar var hvorki rennandi vatn né rafmagn, hvað þá… Meira

Af sviðum, rengi og súrum pung og magál

Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstjóri Stuðlabergs með meiru átti afmæli 15. janúar og vaknaði með vísu á vörunum. Fátt er nú mér til meins mun ekki sakna neins; sæll og glaður, sjálfmiðaður, - áttatíu og eins Meira

Miðvikudagur, 29. janúar 2025

Hjónin Erna og Hjalti með fjalllendið í Washington-ríki á bak við sig.

Lýsir eftir golfkúlunum sínum

Hjalti Þórarinsson er fæddur 29. janúar 1975 á Landspítalanum í Reykjavík. „Ég bjó með foreldrum mínum og ættmennum í Fossvogi fyrstu árin, en stoppaði síðan stutt í Seljahverfi áður en foreldrar mínir drógu mig til Danmerkur tveggja ára Meira

Af ævi, blús og mismælum í bland við frost og funa

Það vakti nokkra athygli þegar Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri RÚV mismælti sig í kvöldfréttum með því að segja að kettir gætu ekki „stytt sér aldur“ með því að baka súrdeigsbrauð eins og mannfólkið – og mun hafa átt við að þeir gætu ekki stytt sér stundir Meira

Þriðjudagur, 28. janúar 2025

Fjölskylda Guðmundar Hjónin, börnin, tengdabörn og barnabörn. Á myndina vantar Fríðu Rut sem var ófædd þegar myndin var tekin.

Samrýndir tvíburar og nágrannar

Guðmundur Guðmundsson og Karólína Guðmundsdóttir fæddust 28. janúar 1955 í Reykjavík. Þau áttu heima í Njarðvík og Reykjavík þar til fjölskyldan flutti í Garðahreppinn, að Gimli við Álftanesveg, árið 1960, sem eru æskuslóðir þeirra systkina Meira

Af snjó, sköfu og Portúgal

Eyjólfi Ó. Eyjólfssyni líður eins og nútíma Sýsífosi, en refsingin sé ekki að velta steini endalaust upp sömu brekkuna, heldur skafa snjó aftur og aftur af sama bílnum í endalausri ofankomu: Í gærdag var hreinsunin hafin og skrjóðurinn vandlega… Meira