Meistari Logi Sigurðsson með bikarinn á Akranesi í gær.
Meistari Logi Sigurðsson með bikarinn á Akranesi í gær. — Ljósmynd/seth@golf.is

Logi Sig­urðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja er Íslandsmeistari karla í holukeppni 2024 en mótið fór fram á Garðavelli á Akra­nesi og hófst á laugardaginn. Hann vann Jó­hann­es Guðmunds­son úr Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaeinvíginu í gær. Logi vann Jóhann Frank Halldórsson úr GR og Jóhannes vann Kristján Þór Einarsson úr GM í undanúrslitum í gærmorgun. Logi er einnig ríkjandi Íslandsmeistari í höggleik.