Atli Hrafn Andrason, sóknarmaður úr HK, var besti leikmaðurinn í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta

Atli Hrafn Andrason, sóknarmaður úr HK, var besti leikmaðurinn í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Atli lék mjög vel og skoraði glæsilegt sigurmark HK gegn Stjörnunni, 4:3, í Kórnum á laugardaginn. Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína og er í úrvalsliði Morgunblaðsins úr 11. umferðinni sem sjá má hér fyrir ofan.