Landsréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa máli Péturs Jökuls Jónssonar frá dómi. Héraðsdómi ber því að taka málið til meðferðar.

Þetta staðfesti Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, og bætir við að nú fari málið sína hefðbundnu leið.

Um er að ræða stóra kókaínmálið þar sem þrír aðrir hafa verið dæmdir fyrir sinn hlut. Pétur Jökull var eftirlýstur hjá alþjóðalögreglunni Interpol í tengslum við málið og var handtekinn í febrúar við komu til landsins. Hann er ákærður fyrir að hafa staðið að innflutningi á 99,25 kg af kókaíni til landsins frá Brasilíu með viðkomu í borginni Rotterdam í Hollandi

Ákæran á hendur Pétri Jökli var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í upphafi mánaðar. Í síðustu viku var málinu hins vegar vísað frá þar sem ekki þótti koma nægilega skýrt fram hver aðkoma Péturs Jökuls hefði verið að málinu.

...